fbpx
Miðvikudagur, október 9, 2024
target="_blank"
HeimFréttirNýr Tækniskóli á að rísa í Hafnarfirði og verða tilbúinn árið 2029...

Nýr Tækniskóli á að rísa í Hafnarfirði og verða tilbúinn árið 2029 – Uppfært

Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði.

Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í morgun á Norðurbakkanum.

Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

27 milljarða króna kostnaður

Fyrirhuguð er 30.000 fermetra bygging sem rúmar um 3.000 nemendur á hafnarsvæðinu. Framkvæmdin verður í tveimur áföngum, í fyrri áfanga er byggð um 24.000 m2 bygging og í seinni áfanga um 6.000 m2 viðbót. Þá er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni í framtíðinni.

Áætlaður heildarkostnaður er 27 milljarðar kr.

Hafnarfjarðarbær leggur til lóð og fjármuni

Fjarðarfréttir hefur ekki fengið samninginn sem nú var undirritaður í hendur og því ekki hægt að segja til um endanlegar skuldbindingar Hafnarfjarðarbæjar en í tillögum verkefnisstjórnar um byggingu skólans frá síðasta ári kemur fram að Hafnarfjarðarbær leggi fram lóð við Flensborgarhöfn til skólans fyrir nýbygginguna ásamt fjárframlagi sem til samans nemur 4,1 milljarði kr.

Uppfært 27.6.2024 kl. 16:40:

Tækniskólinn mun stofna dótturfélag Skólastræti Tækniskólans ehf. sem mun starfa til almannaheilla. Mun félagið standa fyrir byggingunni og rekstri og leigja Tækniskólanum húsnæðið. Á það að hafa yfir að ráða a.m.k. 20% af stofnkostnaði framkvæmdanna í eigið fé. Framkvæmdirnar verða fjármagnaðar með 80% láni til 45 ára með veði í byggingunni.

Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig til að leggja Skólastræti til 80% af eiginfjárframlaginu í formi lóðar án kvaða skv. staðfestu lóðarblaði. Er það um 4,4 milljarðar kr. á verðlagi í janúar 2023. Samkomulag er um að eignarhald á húsnæðinu og öðrum búnaði verði 80% í eigu ríkisins, 16% í eigu Hafnarfjarðarbæjar og 4% í eigu Skólastrætis eða hluthafa þess þegar félagið hefur greitt upp þau lán sem verða tekinn vegna framkvæmdanna.

Stefni endanlegur kostnaður fram úr áætlun fram að leigutíma skulu forsendur byggingarinnar endurmetnar og leitast við að skala verkefnið niður. Reynist kosntaður á framkvæmdatímanum samt sem áður umfram áætlun er hægt að óska eftir viðbótarframlögum frá Hafnarfjarðarbæ og Skólastræti í formi aukningar á eigin fé sem nemur 20% af umframkostnaði en 80% verði fjármagnað með lántöku.

Byggingin næst er hafnarskrifstofn, þar fyrir aftan er Fornubúðir 1 sem Hafnarfjarðar hefur samið um kaup á og svo er lóð Kænunnar.

Hafnarfjarðar hefur þegar gert samning um kaup á 2.457 m² lóð, Fornubúðir 1, ásamt húsnæði sem á að rífa fyrir 435 milljónir kr.

Lóð Vörubretta og Cuxhavengata 1 og 3.

Aðrar lóðir sem eru á svæði sem fyrirhugað er að skólinn rísi á er Fornubúðir 3, þar sem Fiskmarkaðurinn var, Óseyrarbraut 2, þar sem Kænan er, Óseyrarbraut 4 þar sem hafnarskrifstofurnar eru, Cuxhavengata 2 þar sem hafnarvogin er, Óseyrarbraut 6 þar sem Vörubretti er, Cuxhavengata 1 með 5 hæða húsi þar sem fjölmörg fyrirtæki eru, Cuxhavengata 3 með vöruskemmu og jafnvel fleiri.

Fyrirhuguð staðsetning Tækniskólans á hafnarsvæðinu við Cuxhavengötu, Fornubúðir og Óseyrarbraut skv. drögum frá 2001 en skv. heimildum Fjarðarfrétt nær svæðið alveg að Óseyrarbraut.

„Þessi undirskrift hér í dag er risavaxið skref í eflingu verk- og starfsnáms, núna er loksins hægt að koma framkvæmdum af stað. Þetta hefur verið forgangsmál mitt sem menntamálaráðherra og ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili og er mikið gleðiefni að sjá enn einn áfangann á þeirri vegferð verða að veruleika. Eftirspurnin er til staðar, bæði meðal nemenda og atvinnulífsins og því ánægjulegt að við stígum þetta mikilvæga skref nú saman til að mæta þessari þörf,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Hugmynd að opnu miðrými í skólanum

Núverandi húsnæði Tækniskólans er komið til ára sinna en í dag fer starfsemi skólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Bygging nýs Tækniskóla markar umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu og er liður í aðgerðum stjórnvalda til að auka veg þess á Íslandi. Segir í tilkynningu að markmiðið sé að efla námið og aðstöðu, koma allri starfseminni fyrir á einum stað, bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins.

Hugmynd að „skólastræti“ sem Tækniskólinn lét vinna.

„Nú byggjum við af stórhug til framtíðar og það er löngu tímabært að sameina starfsemina á einum stað. Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi og við erum afar þakklát stjórnvöldum og Hafnarfjarðarbæ fyrir þann stuðning og traust sem þau sýna skólanum með aðkomu sinni að þessu stóra verkefni. Ábyrgð skólans er mikil og við höfum undirbúið verkefnið af kostgæfni og erum sannfærð um að nýbygging skólans og hugmyndafræðin að baki grunnhönnun hennar muni stórefla iðn-, starfs- og tækninám í landinu,“ sagði Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans.

Frá undirritun samkomulagsins í dag. Frá vinstri: Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fagnar því að samkomulagið sé í höfn. „Lífið á hafnarbakkanum tekur miklum breytingum þegar Tækniskólinn rís við Suðurhöfnina og þúsundir nemenda sækja þangað nám. Skólinn mun falla vel inn í þá uppbyggingu sem framundan er á hafnarsvæðinu. Við Hafnfirðingar erum spennt að fá skólann í bæinn og erum viss um að koma hans mun auka umsvif og efla mannlíf enn frekar.“

Tækniskólinn vill flytja alla sína starfsemi í Hafnarfjörð

Drög að samningi bæjarins við ríki og aðra hagaðila um byggingu nýs Tækniskóla liggja fyrir

Undirrituðu viljayfirlýsingu um að húsnæði Tækniskólans verði í Hafnarfirði

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2