HeimFréttirPólitíkFyrir Hafnarfjörð, fólkið og framtíðina

Fyrir Hafnarfjörð, fólkið og framtíðina

Það var dásamlegt að alast upp í Hafnarfirði. Hér liggja rætur mínar, minn­ingar og tengsl. Ég ólst upp í norður­bænum, gekk í Engidalsskóla og Víði­staðaskóla og átti ótal stundir í Hellisgerði sem barn. Hafnarfjörður er samfélag þar sem nálægð, kraftur og mannleg tengsl skipta máli. Hér hef ég búið mest alla mína ævi, þar sem ég og maðurinn minn hófum okkar búskað og ólum upp börnin okkar tvö.

Lífið hefur kennt mér að innri styrkur vex þegar á móti blæs. Áskoranir, áföll og breytingar geta verið uppspretta vaxtar ef við gefum okkur rými til að læra af þeim. Það sem skiptir máli er ekki bara það sem gerist, heldur hvernig við vinnum úr því. Sú reynsla hefur mótað hvernig ég hugsa og starfa.

Ég er með MSc í mannauðsstjórnun, BSc í viðskiptafræði, markþjálfi og er jógakennari. Ég er stofnandi Hugarþols þar sem ég vinn að því að efla mannauð, samskipti, vellíðan og árangur. Í gegnum starfsferill minn hef ég því öðlasat mikið reynslu að vinna með fólki.

Ég trúi því að mannauðurinn sé mikil­vægasta auðlind samfélagsins. Þegar vel er hlúð að fólki styrkist samfélagið í heild. Þess vegna þurfum við alltaf að horfa á fólkið sem þjónustan á að ná til – börnin, fjölskyldur, starfsfólk, ungt fólk og eldri borgarar.

Ég vil sjá Hafnarfjörð sem samfélag þar sem fólk getur lifað góðu lífi á öllum æviskeiðum – þar sem börn fá góðan grunn, fjölskyldur finna fyrir öryggi, ungt fólk upplifir tilgang og tækifæri og eldra fólk hefur tækifæri til virkni og þátttöku. Lýðheilsa snýst ekki aðeins um heil­brigðisþjónustu heldur um hvernig við búum, hreyfum okkur og tengjumst.

Fyrir mér snýst pólitík ekki um stór orð og loforð, heldur um fólk, þjónustu, ábyrgð og samtal. Það snýst um að hlusta, skilja og taka ákvarðanir sem hafa raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks.

Þátttaka mín í pólitík byggir á þeirri trú að við getum og eigum alltaf að gera betur. Ég vil leggja mitt af mörkum til að þróa áfram sterkt og hlýtt samfélag þar sem traust, fagmennska og samvinna eru í forgrunni.

Ég býð mig fram vegna þess að mér er annt um Hafnarfjörð og fólkið sem hér býr. Framtíð bæjarins byggist á því að við höldum áfram að rækta það sem skiptir mestu máli: gott mannlíf, sterka þjónustu og samfélag þar sem allir finna að þeir skipti máli.

Kolbrún Magnúsdóttir
skipar annað sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2