HeimFréttirSamkaup kaupir rekstur Fjarðarkaupa

Samkaup kaupir rekstur Fjarðarkaupa

Dótturfélag Dranga, Samkaup, hefur gengið frá samningi við eigendur Fjarðarkaupa um kaup á verslunarrekstri félagsins. Kaupin eru liður í áframhaldandi uppbyggingu og þróun á starfsemi Dranga á íslenskum neytendamarkaði, eins og segir í tilkynningu frá Dröngum

Rekstur Fjarðarkaupa bætist við starfsemi samstæðunnar sem rekur í dag verslunarkeðjurnar Nettó, SPAR, Prís, Heimkaup, 10-11, Kjörbúðina og Krambúðina.

Fjölskyldufyrirtækir frá 1973

Fjarðarkaup var stofnað í Hafnarfirði árið 1973 og hefur í rúma hálfa öld verið rekið sem fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði. Verslunin er þekkt fyrir gott vöruúrval, góða þjónustu og sterk tengsl við nærsamfélagið. Velta félagsins árið 2025 var 3,8 milljarðar og er starfsmannafjöldinn 45 talsins.

Kaup Samkaupa eru sögðu falla vel að stefnu Dranga um að byggja upp öfluga samstæðu fyrirtækja og leiða þróun og framfarir á íslenskum neytendamarkaði. Áhersla félagsins er á gott úrval vöru, skýra ásýnd vörumerkja og á góða þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fyrirhugað er að afhending verslunarrekstrarins fari fram þegar samþykki þess liggur fyrir. Áform eru um að efla þjónustuframboð í versluninni, fyrst með opnun apóteks Lyfjaval í versluninni og síðan með opnun handverksbakarísins Brauð & Co. og sérverslun sem rekin verður af Kjötkompaní. Framtíðarsýn á starfsemina í Hafnarfirði lýtur að nýtingu lóðar og staðsetningar til að skapa umhverfi þar sem þjónusta við viðskiptavini getur vaxið og dafnað.

„Fjarðarkaup hafa byggt upp sterka stöðu í nærsamfélaginu og víðar, og við viljum byggja áfram á þeim styrkleikum, þekkingu og reynslu sem þar eru fyrir hendi. Með þessum kaupum sjáum við tækifæri til að þróa verslunarreksturinn með því að efla þjónustuframboðið í samstarfi við Lyfjaval, Brauð & Co. og Kjötkompaní. Markmið okkar er að byggja rekstur til framtíðar, með hagkvæmni í fyrrarúmi, góða þjónustu og hag starfsfólks og viðskiptavina að leiðarljósi,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga.

Frá vinstri: Jón Anton Jóhansson, framkvæmdastjóri fasteigna hjá Dröngum, Sveinn Sigurbergsson, Hjördís Sigurbergsdóttir, Rósa Sigurbergsdóttir, Gísli Sigurbergsson, eigendur Fjarðarkaupa, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga og Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa. – Ljósmynd: Silla Pálsdóttir.

„Frá árinu 1973 hafa Fjarðarkaup vaxið og þróast samhliða því að haldið hefur verið í ákveðin gildi og viðhorf sem fylgt hafa versluninni frá stofnun. Með opnun Fjarðarkaupa á Trönuhrauni laugardaginn 7. júlí það ár má segja að nýr kafli hefjist í verslunarsögu Hafnarfjarðar. Við höfum í áranna rás reynt að fylgja stefnu stofnendanna samhliða þeirri miklu þróun sem verið hefur í rekstri dagvöruverslana undanfarin ár og áratugi. Við stöndum í þakkarskuld við alla okkar viðskiptavini, birgja og aðra samstarfsaðila en ekki síst starfsfólkið okkar sem er einstakt. Þegar reksturinn verður afhentur verða tímamót. Við munum kveðja Fjarðarkaup í góðri sátt og erum þess fullviss að rekstur þessarar einstöku verslunar fari í góðar hendur samstæðu Dranga. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að starfsfólkinu okkar, sem í raun er hjartað og sálin í versluninni og hefur margt starfað hjá okkur um áratuga skeið, býðst að halda áfram störfum í Fjarðarkaupum. Þannig teljum við að varðveita megi sérstöðu verslunarinnar þótt breytingar verði á eignarhaldi. Við óskum nýjum eigendum og starfsfólki alls hins besta í framtíðinni og færum viðskiptavinum okkar, starfsfólki og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir samfylgdina,“ segja bræðurnir Sveinn og Gísli Sigurbergssynir fyrir hönd fjölskyldunnar í Fjarðarkaupum

Drangar

Drangar er nýstofnað móðurfélag sem sameinar nokkur af sterkustu vörumerkjum landsins undir einn hatt. Þar má nefna verslanir á borð við Nettó, Prís, Spar, Krambúðina, Kjörbúðina, 10-11, netverslunina Heimkaup og nú Fjarðarkaup,  handverksbakaríið Brauð & Co., Orkuna með sjálfsafgreiðslustöðvar og Löður bílaþvott, og lyfjaverslanir Lyfjavals. Samtals telja þjónustustöðvar Dranga yfir 150 um land allt og snerta þannig daglegt líf viðskiptavina á margan hátt eins og þegar gera á stór innkaup fyrir helgina, sækja lyf eða fylla á bílinn.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2