HeimUmræðanJá til að sjá 29. ágúst

Já til að sjá 29. ágúst

Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um það hvort teknar verði upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik. Ekki er verið að kjósa um aðild að ESB í þessari atkvæðagreiðslu. Verði það niðurstaða kjósenda að hefja á ný aðildarviðræður þá munu formlegar aðildarviðræður fara í gang. Leiði þær viðræður til þess að samningar náist þá verður aðildarsamningur lagður fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu og sú atkvæðagreiðsla mun þá snúast um inngöngu í ESB. Endanleg ákvörðun um inngöngu Íslands í Evrópusambandið er því í höndum þjóðarinnar.

Þessi einföldu sannindi er mikilvægt að árétta vegna þess að ýmislegt hefur verið sagt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar af ýmsum talsmönnum nei hreyfingarinnar og sérhagsmunaafla í landinu til þess að flækja málið. Reynt er að stilla málinu upp með þeim hætti að atkvæðagreiðslan núna í ágúst snúist um inngöngu í ESB. Svo er alls ekki og mikilvægt að halda því til haga svo kjósendur nýti atkvæði sitt á réttum forsendum 29. ágúst.

Ákvörðun um inngöngu er í höndum þjóðarinnar

Ekkert ríki hefur gengið í ESB nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu og þjóðarvilji hafi legið ljós fyrir. Norðmenn hafa tvisvar fellt aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu og Bretar, aðildarþjóð frá 1973, samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2016 að ganga úr ESB sem raungerðist svo að lokum árið 2020. Engum heilvita stjórnmálamanni dettur það til hugar að bera ekki endanlegan aðildarsamning undir þjóðina. Ákvörðun um inngöngu er því höndum þjóðarinnar eins og tilfellið er hjá öllum 27 fullvalda ríkjum Evrópusambandsins og Íslandi og Noregi.

Fáum allar staðreyndir á borðið

Nýtum því tækifærið 29. ágúst og samþykkjum að fara í aðildarviðræður. Könnum það til fulls hvort full aðild færi okkur eitthvað umfram aukaaðildina að ESB í gegnum EES samninginn. Það verður ekki gert nema að fá allar staðreyndir á borðið í gegnum aðildarviðræður og í kjölfarið með aðildarsamningi sem lagður verður fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Segjum því já 29. ágúst – til að sjá!

Árni Rúnar Þorvaldsson,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2