Í nýrri skýrslu KPMG um fjármál Hafnarfjarðarkaupstaðar er lögð rík áhersla á að rekstur A-hluta sveitarfélagsins verði fjárhagslega sjálfbær og að ekki sé gengið á fjármuni B-hluta fyrirtækja til að mæta rekstrarvanda bæjarsjóðs.
Í kafla skýrslunnar um fjárhagslegan aðskilnað A- og B-hluta segir að A-hlutinn sé fjármagnaður með skatttekjum og eigi að standa undir eigin rekstri, þjónustu, viðhaldi eigna og greiðslubyrði skulda. Þar sé sérstaklega tekið fram að A-hluti eigi ekki að reiða sig á afkomu eða fjárhagslegan stuðning frá rekstrareiningum í B-hluta.
KPMG fjallar sérstaklega um Hafnarfjarðarhöfn og bendir á að samkvæmt hafnalögum megi eingöngu verja tekjum og eignum hafnar í þágu hafnarinnar. Afgangur eða lausafé hafnarsjóðs sé því ekki frjálst ráðstöfunarfé sveitarfélagsins og verði ekki nýtt til að fjármagna almenna starfsemi A-hlutans.
Sambærileg sjónarmið eru sett fram um Vatnsveitu Hafnarfjarðar og Fráveitu Hafnarfjarðar. Þar segir að ekki sé gert ráð fyrir arðgreiðslum til A-hluta úr þessum rekstrareiningum og að fjármunum sem verða til vegna þjónustugjalda verði ekki ráðstafað til A-hlutans nema skýr lagaheimild sé fyrir slíku.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að bæði vatnsveita og fráveita hafi á undanförnum árum myndað meira fé en þurft hefur til að standa undir afborgunum og fjárfestingum. KPMG leggur þó áherslu á að gjaldskrár þessara eininga eigi að taka mið af rekstri, viðhaldi, endurnýjun og langtímauppbyggingu viðkomandi innviða en ekki fjárþörf bæjarsjóðs.

Hafa skilað verulegum hagnaði
Undanfarin ár hafa Vatnsveita, Fráveita og Hafnarfjarðarhöfn skilað verulegum hagnaði en Vatnsveita og Fráveita hafa ekki verið gerðar upp í sérstökum ársreikningi.
Í skýrslunni kemur einnig fram að KPMG telur rekstur A-hluta sveitarfélagsins ósjálfbæran að óbreyttu. Þar er bent á að framlegð sé undir viðmiðum, fjármunamyndun of lítil og skuldsetning fari vaxandi. Lausnin felist því að mati ráðgjafanna í umbótum á rekstri A-hlutans sjálfs fremur en að treysta á fjármuni úr B-hluta starfseminni.
Skýrsluna í heild má lesa hér




