Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fagnar 80 ára afmæli í dag og var því fagnað með kaffisamæsti í húsakynnum félagins. Þar mætti forsvarsfólk félagsfólk, ýmsir sem hafa tengst félaginu á ýmsan hátt, starfsfólk, félagsfólk og gestir.
Sigurður Einarsson, formaður bauð gesti velkomna með stuttri tölu og svo var boðið upp á veitingar.
Tímamótanna var minnst í byrjun mánaðarins með sex síðna kálfi í prentuðu blaði Fjarðarfrétta en þar mátti finna brot úr sögu félagsins sem Jónatan Garðarsson, fv. formaður félagsins og fv. formaður Skógræktarfélags Íslandis ritaði og er birt hér að neðan.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar 80 ára
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar var stofnað fyrir 80 árum af hugsjónafólki, sem horfði til framtíðar með þá fullvissu í brjósti að hægt væri að græða upp bæjarlandið þó svo að það væri tötrum klætt, eftir óhefta sauðfjárbeit og uppblástur.
Hafnfirðingar voru stoltir af ræktunarstarfi Málfundafélagsins Magna í Hellisgerði, undir forystu Ingvars Gunnarssonar, kennara Barnaskóla Hafnarfjarðar. Hann leiddi hópa fullnaðarprófsnema í vorferðum skólans í Undirhlíðar við Kaldársel. Börnin fengu að gróðursetja tré í Litla Skógarhvammi þar sem Skólalundur er núna.
Nokkrir eldhugar byrjuðu að rækta í Sléttuhlíð um miðjan þriðja áratug síðustu aldar og bærinn grænkaði um leið og tré sem gróðursett höfðu verið í húsagörðum tóku að vaxa og skapa skjól.
SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS
Skógræktarfélag Íslands var stofnað á Þingvöllum sumarið 1930 sem höfuðfélag skógræktarmála í landinu og héraðsfélag skógræktar á suðvesturhorni landsins. Það fyrirkomulag virkaði ekki nógu vel og var lögum félagsins breytt á aðalfundi 1946 í því skyni að stofna skógræktarfélög í Reykjavík og Hafnarfirði.
SKÓGRÆKTARFÉLAG HAFNARFJARÐAR STOFNAÐ
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar var stofnað 25. október 1946 og fékk úthlutað landi á Beitarhúsahálsi, norðan Hvaleyrarvatns. Landið var illa farið og ekki hægt að hefja skógrækt að svo búnu. Óskað var eftir því við bæjarstjórn að félagið fengi nokkurra hektara svæði í Gráhelluhrauni rétt ofan Lækjarbotna og var það samþykkt. Landið var girt af fyrri hluta árs 1947 og mættu spariklæddir félagar í Gráhelluhraunsgirðinguna í lok maí sama ár og gróðursettu 3.000 trjáplöntur. Næstu árin var fastur liður í sumarbyrjun að gróðursetja tré í þessum reit með ærnu erfiði. Hraunið var illt yfirferðar og notast þurfti við sérstaka haka til að gera holur fyrir trjáplönturnar. Margir áhugasamir bæjarbúar tóku þátt í þessu verkefni.
SVÆÐI BÆTAST VIÐ
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar tók við Litla Skógarhvammi 1952 og 1961 var 60 ha svæði bætt við sitthvoru megin við Kúadal í Undirhlíðum. Árið 1958 var lokið við að girða landið á Beitarhúsahálsi og Vatnsendahlíð við Hvaleyrarvatn og útplöntun gat hafist. Sama ár var 56 ha svæði umhverfis Stóra Skógarhvamm í Undirhlíðum girt og árið eftir hófst þar gróðursetning barrtrjáa. Ungir drengir í vinnuskólanum í Krýsuvík unnu það verk 1959 til 1964 undir stjórn kennaranna Hauks Helgasonar og Helga Jónassonar.
ÁFÖLL EFLDU STARFIÐ
Páskahretið 1963 kom skyndilega eftir mikinn hlýindakafla vikurnar á undan. Trjágróður hafði tekið við sér í hlýindunum og varð kuldakastið til þess að kal kom í tré af erlendum uppruna og drápust mörg þeirra. Um líkt leyti gerði grenilús mikinn usla og stórskemmdi rauðgrenitré. Forráðamenn félagsins réðust strax í að fella ónýt tré og gróðursetja stafafurur og sitkagreni.
Vorið 1979 voru margir á ferli við Hvaleyrarvatn þegar krakkar kveiktu eld innan skógræktargirðingarinnar sem breiddist hratt út. Vanbúið slökkvilið réð illa við ástandið og þarna brann 15 ha skógur, meðal annars elstu trén við Hvaleyrarvatn. Þetta var mikið áfall og verulegt tjón. Ákveðið var að gróðursetja strax í stóran hluta brunareitsins, en skilja ónýt tré eftir til áminningar um skaðsemi eldsins. Á þessu svæði er núna trjásýnireitur félagsins með mörg hundruð trjátegundum og kvæmum, sem eru merkt með nöfnum trjánna.
VERULEG STÆKKUN RÆKTUNARSVÆÐIS
Árið 1990 stækkaði umráðasvæði félagsins verulega þegar við bættust Höfðaland, Klifsholt og stór hluti hraunsins suður og vestur af Sléttuhlíð. Landinu var skipt upp í misstórar spildur sem úthlutað var til landnema, sem tóku reitina í fóstur. Stór hluti þessa svæðis var nauðbitinn og uppblásinn, en núna er þetta fallega gróið og skjólsælt útivistarsvæði.
GIRÐINGAR FELLDAR OG LAGNING SKÓGARSTÍGA
Þegar búið var að girða allt uppland Hafnarfjarðar þótti ástæðulaust að halda við þeim girðingum sem umluktu skógræktarsvæðin. Þær voru felldar í áföngum og áhersla lögð á grisjun, uppkvistum og lagningu skógarstíga til að auðvelda aðgengi að svæðum félagsins. Skógarstígarnir njóta ómældra vinsælda og sífellt lengjast þeir og nýir stígar bætast við. Þar á meðal er Græni stígurinn, sem er nánast fullbúinn í Græna treflinum í Hafnarfirði en í framtíðinni á hann að liggja alla leið frá Kaldárseli að Esjurótum.
NYRSTI RÓSAGARÐUR HEIMS
Sumarið 2005 gróðursettu félagar í Rósaklúbbnum 100 rósir af 34 tegundum í sunnanverðum Húshöfða. Allskonar rósir blómstra þar á sumrin, á svæði sem var áður uppblásið holt. Minningarlundir og minningarskildir tileinkaðir frumkvöðlum félagsins eru á nokkrum stöðum. Við Skólalund er minningarsteinn með nafni Ingvars Gunnarssonar og víðsvegar má sjá steina með nöfnum frumkvöðlanna. Þar á meðal eru Ólafur Vilhjálmsson, Guðmundur Þórarinsson, Jón Gestur Vigfússon, Jón Magnússon, Garðar Þorsteinsson, Þorvaldur Árnason, Björn Árnason og Hólmfríður Finnbogadóttir.
SKÓGARREITIR
Værðarhvammur við enda Værðarstígs var gerður 2011 að tilstuðlan Lionsklúbbsins Ásbjarnar til minningar um Gísla S. Geirsson. Minningarreitur um hjónin Hjálmar R. og Else S. Bárðarson var útbúinn í Vatnshlíð árið 2012. Nokkru vestar í hlíðinni er Cuxhavenreiturinn, þar sem félagar í Cuxhavenfélaginu annast gróður setningu.
NÆST FJÖLMENNASTA SKÓGRÆKTARFÉLAGIÐ
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er annað fjölmennasta skógræktarfélag landsins, með fjölbreytta starfsemi og nýtur trausts bæjarbúa og þeirra sem stjórna bænum. Fjöldi sjálfboðaliða hafa komið að starfi félagsins í gegnum tíðina, hvort sem það eru einstaklingar, skólafólk, fjölskyldur, vinahópar, fyrirtæki eða stofnanir. Allt þetta fólk hefur skilað ómetanlegu starfi á löngum tíma. Mestu hefur munað um fjölmarga vinnuhópa ungs fólks sem unnið hafa hjá félaginu á sumrin. Unga fólkið hefur m.a. unnið að stígagerð, grisjun, gróðursetningu og umhirðu svæðanna sem Skógræktarfélagið hefur umsjón með.
JÓLIN Í HÖFÐASKÓGI
Það er fastur liður hjá mörgum að mæta í Höfðaskóg á aðventunni og kaupa jólatré og jólaskreytingar og fá sér heitt súkkulaði og piparkökur. Með þessu móti styður fólk starfið því afraksturinn fer í að gróðursetja meira og viðhalda svæðum félagsins. Á sumrin nýtur gróðrarstöðin Þöll mikilla vinsælda, en hún er sjálfstætt rekstrarfélag með fjölbreytt trjáplöntuúrval. Stór hluti þeirra trjáplantna sem gróðursettar eru árlega á svæðum félagsins eru ræktaðar í gróðurhúsum félagsins. Starfsfólk félagsins annast umhirðu í stórum hluta upplandsins, einkum í kringum Hvaleyrarvatn, eina vinsælustu útivistarperlu bæjarins.
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands hefur þrisvar verið haldinn í Hafnarfirði og hafa félagsmenn tekið virkan þátt í forystusveit Skógræktarfélags Íslands. Meðal verkefna sem Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hefur sinnt í samvinnu við Skógræktarfélag Íslands er Landgræðsluskógaverkefnið og Yrkjusjóður sem gerir skólabörnum kleift að gróðursetja árlega trjáplöntur í landnemareitum grunnskólanna í bænum.
MIKIL BREYTING
Uppland Hafnarfjarðar hefur tekið stakkaskiptum frá því að þar voru uppblásin og stórgrýtt holt og melar með illa förnum gróðurtorfum. Þá var algengt að moldrok legði yfir bæinn yfir sumartímann. Með þrautseigju og dugnaði hefur þróuninni verið snúið við og núna er fátt sem minnir á auðnina sem þarna var á sínum tíma enda hafa verið gróðursett nokkur milljón tré á þessum átta áratugum.















