HeimFréttirPólitíkÁkvörðunin tekin í hliðarherbergi af fulltrúm þriggja flokka

Ákvörðunin tekin í hliðarherbergi af fulltrúm þriggja flokka

Ákvörðun um að hætta við áform um íbúðabyggð fyrir verkamenn við Krýsuvíkurveg var ekki tekin á neinum formlegum fundi hjá Hafnarfjarðarbæ.

Skv. heimildum Fjarðarfrétta var ákvörðunin tekin á sama tíma og fundur forsetanefndar stóð yfir en þangað mættu oddvitar sk. meirihlutaflokka ekki.

Fulltrúar Framsóknar og Miðflokksins heyrðu af ákvörðuninni í fjölmiðlum.

Bæjarfulltrúi Miðflokksins,  Einar Geir Þorsteinsson, var með tillögu fyrir bæjarstjórnarfund nk. miðvikudag.

Tillagan er svohljóðandi:

„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafnar staðfestingu samkomulags við Styrkás Fasteignir ehf. um þróun og úthlutun lóða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg og ákveður jafnframt að falla frá fyrirhugaðri uppbyggingu starfsmannahverfis á grundvelli þess. Með ákvörðuninni er tekið mið af þeim skýru sjónarmiðum og áhyggjum sem íbúar hafa komið á framfæri, meðal annars á fjölmennum íbúafundi þann 13. október sl. Bæjarstjóra er falið að tilkynna Styrkás Fasteignum ehf. ákvörðun bæjarstjórnar og annast nauðsynlega eftirfylgni.“

Yfirlýsing bæjarfulltrúa Miðflokksins

„Miðflokkurinn fagnar því að meirihlutinn ætli að styðja tillögu Miðflokks og Framsóknarflokks um að falla frá áformunum og hvetur til formlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn Miðflokkurinn í Hafnarfirði fagnar tilkynningu meirihlutans um að fallið verði frá áformum um 260 íbúða starfsmannahverfi við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg.

Fulltrúi Miðflokksins greiddi einn atkvæði gegn samkomulaginu við Styrkás Fasteignir ehf. þegar það var lagt fyrir bæjarráð. Flokkurinn hefur síðan ítrekað tekið málið upp í bæjarstjórn og kallað eftir því að samkomulaginu verði hafnað. Gagnrýnin hefur meðal annars beinst að umfangsmikilli og einsleitri starfsmannabyggð, tengingu búsetu við vinnusamband og þeim réttindum sem einkafélaginu yrðu veitt yfir bæjarlandinu.

Í kjölfar afgreiðslu bæjarráðs kom fram mikil andstaða meðal íbúa. Fjölmargir skrifuðu undir mótmæli og á fjölmennum íbúafundi 13. október komu fram skýrar áhyggjur af áformunum og undirbúningi þeirra. Ég stóð einn gegn samkomulaginu í bæjarráði og hef fylgt málinu eftir síðan. Ég fagna því að meirihlutinn hafi nú endurskoðað afstöðu sína. Íbúar hafa látið í sér heyra og átt stóran þátt í þessari niðurstöðu.

Tilkynning meirihlutans kemur eftir að Miðflokkurinn og Framsókn lögðu fram tillögu um að hafna samkomulaginu og falla frá áformunum. Bæjarráð hafði samþykkt að leggja samkomulagið fyrir bæjarstjórn til staðfestingar, en þar hefur málið ekki verið afgreitt endanlega.

Miðflokkurinn hvetur meirihlutann til að fylgja tilkynningu sinni eftir með því að samþykkja fyrirliggjandi tillögu á fundi bæjarstjórnar á miðvikudag.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2