Þriðjudagur, janúar 27, 2026
HeimFréttirAtvinnulífHafnfirðingurinn Sunna Björg verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Hafnfirðingurinn Sunna Björg verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Hafnfirðingurinn Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin til að verða forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún mun taka við af Rannveigu Rist í vor sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1997. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminium Atlantic deildarinnar innan Rio Tinto.

Sunna Björg hefur langa og fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum meðal annars á sviði áliðnaðar og orkuframleiðslu. Sunna Björg kemur til Straumsvíkur frá HS Orku þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri tæknisviðs síðan 2020. Áður starfaði Sunna Björg sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Alvotech á árunum 2016 – 2020. Sunna Björg þekkir vel til starfsemi Rio Tinto á Íslandi en hún starfaði hjá fyrirtækinu á árunum 2001 – 2015, síðast sem framkvæmdastjóri kerskála.

Sunna Björg er með B.Sc. gráðu í efna- og vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

 „Það er mér mikil ánægja að snúa aftur til starfa hjá Rio Tinto á Íslandi, sem ég þekki vel af fyrri störfum. Fyrirtækið er rótgróið en hefur jafnframt verið í stöðugri þróun og gegnt lykilhlutverki í íslenskum iðnaði í meira en hálfa öld. Það er svo sannarlega spennandi að taka við fyrirtæki sem byggir á svo traustum grunni og skýrri framtíðarsýn. Ég hlakka mikið til að leiða félagið áfram með þeim frábæra hópi starfsfólks, sem hefur verið undirstaðan að farsælum rekstri þess síðustu ár.” segir Sunna Björg.

 „Ráðning Sunnu Bjargar markar tímamót fyrir álverið í Straumsvík, þar sem Rannveig Rist hefur átt farsælan og eftirtektarverðan feril sem forstjóri í tæp 30 ár. Víðtæk og fjölbreytt reynsla Sunnu mun nýtast einkar vel, bæði í rekstri sem og þróun álversins til framtíðar. Starfsreynsla hennar hjá fyrirtækinu veitir auk þess mikilvæga tengingu við starfsemi og starfsfólk fyrirtækisins. Það er alltaf ánægjulegt þegar fyrrum starfsfólk snýr aftur til fyrirtækisins reynslunni ríkari. Jafnframt vil ég nýta tækifærið til að þakka Rannveigu Rist fyrir hennar mikilsverða og dýrmæta starf. Rannveig er sannkallaður brautryðjandi og framlag hennar til fyrirtækisins og áliðnaðarins verður seint fullþakkað. Hún hefur mótað fyrirtækið með framúrskarandi leiðtogahæfileikum, framsýni og hugrekki.“ segir Sébastien Ross, framkvæmdastjóri Aluminium Atlantic hjá Rio Tinto.

 

Sunna Björg ráðin framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2