HeimFréttirDadó Fenrir tekur við sem aðalþjálfari SH af Klaus Jürgen Ohk

Dadó Fenrir tekur við sem aðalþjálfari SH af Klaus Jürgen Ohk

Klaus Jürgen Ohk hefur sagt upp starfi sínu sem yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Sundfélags Hafnarfjarðar og mun setjast í helgan stein.

Klaus hefur gefið sig allan fram í starfi fyrir SH og átt mjög stóran þátt í að gera Sundfélag Hafnarfjarðar að öflugasta sundfélagi landsins.

Hann kom fyrst til félagsins sem þjálfari árið 1991 og var til 1996. Hann kom aftur til félagsins árið 2008, þá sem yfirþjálfari og framkvæmdastjóri og hefur verið það til þessa dags.

Í gærkvöldi skrifaði Dadó Fenrir Jasminuson undir samning við félagið og mun taka formlega við sem nýr yfirþjálfari félagsins en Dadó á glæstan keppnisferil að baki með félaginu.

„Þetta eru risa stórir skór sem Dadó ætlar að fylla upp í en hann er heldur betur tilbúinn í verkefnið og verður gaman að sjá hann taka við keflinu og stýra félaginu inn í framtíðina. Innilega til hamingju með nýja titilinn elsku besti Dadó okkar og takk fyrir allt elsku Klaus án þín værum við svo sannarlega ekki besta sundfélag/fjölskylda á landinu. Fórnfýsi þín, skuldbinding, sem og uppeldi á fleiri sundkynslóðum er aðdáunarverð og hreint út einsdæmi,“ segir Karl Georg Klein, formaður SH í tilkynningu frá félaginu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2