fbpx
Fimmtudagur, október 3, 2024
HeimÍþróttirSund280 sundmenn á sundmóti í Ásvallalaug um helginga

280 sundmenn á sundmóti í Ásvallalaug um helginga

HM sundfólk meðal keppenda

280 sundmenn úr 14 félögum munu stinga sér til sunds næstu helgi í Ásvallalaug, Hafnarfirði, á Extramóti SH.

Merki Sundfélags Hafnarfjarðar

HM-sundmennirnir og sundkonurnar Hrafnhildur Lúthersdóttir, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Aron Örn Stefánsson og Kristinn Þórarinsson eru meðal fyrstu keppenda.

Sundmótið verður haldið á laugardag og sunnudag, aðeins þremur vikum fyrir Íslandsmeistaramótið, og er því síðasta tækifæri til að prófa formið og hraðann á þessu tímabili.

Einhverjir sundmenn eru jafnvel að reyna við lágmörk fyrir Evrópumeistaramótið sem er í desember, og aðrir fyrir Norðurlandameistaramótið sem verður haldið í Reykjavík einnig í desember.

Tímatafla mótsins:

  • Laugardagur fyrir hádegi kl. 10.00 – 13.00
  • Laugardagur eftir hádegi kl. 16.00 – 19.00
  • Sunnudagur fyrir hádegi kl. 10.00 – 13.00

Úrslit í beinni má sjá hér en þar má einnig sjá nákvæman tímaseðil með því að smella á „start list”.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2