Nú styttist í hið árlega Flensborgarhlaup sem allir í fjölskyldunni geta tekið þátt í. Er hlaupið orðið áberandi en nú hefst hlaupið og því lýkur í miðbæ Hafnarfjarðar.
Hlaupið fer nú fram í níunda sinn þriðjudaginn 17. september kl.17.30.
Allt starf við hlaupið er unnið í sjálfboðavinnu af starfsfólki og nemendum Flensborgarskólans með dyggum stuðningi frá Hlaupahópi FH, Skokkhópi Hauka og Hafnarfjarðarbæ.
Allur ágóði til góðgerðarmála
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála og í ár rennur ágóði þess óskiptur til „Bergsins Headspace“, en Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur sem veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna upp að 25 ára aldri.
Hlaupavegalengdir
Eins og áður er boðið uppá þrjár vegalengdir, 10 km og 5 km með tímatöku og 3 km án tímatöku. Hlaupið hefst við strætisvagnaskýlið á Fjarðargötu gegnt íþróttahúsinu (við Strandgötu) og hlaupið er á göngustígnum í átt að Álftanesi og út á Álftanes fyrir þá sem hlaupa 10km. Farin er sama leið til baka niður á Fjarðargötu.
Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.
Verðlaunaafhending
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki. Aldurflokkar eru tveir: 17 ára og yngri og 18 ára og eldri. Einnig verða fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna sem allir eiga möguleika á.
Verðlaunaafhending hefst kl 18.30 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, en þar verður einnig heitt á könnunni og næring fyrir hlaupara að hlaupi loknu.
Skráning
Skráning er á hlaup.is til kl. 12 á hádegi á hlaupadegi. Ekki er hægt að skrá sig á staðnum en afhending keppnisgagna hefst kl. 16 á hlaupadegi í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
Verð á skráningu fyrir miðnætti sunnudaginn 15. september:
- Allar vegalengdir 750 kr fyrir 20 ára og yngri (f. 1999 og síðar)
- 3 km hlaup – 1.250 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
- 5 km og 10 km hlaup – 1.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
Verð á skráningu frá og með mánudaginn 16. sept til kl. 12 á hlaupdag:
- Allar vegalengdir 1.000 kr fyrir 20 ára og yngri (f. 1999 og síðar)
- 3 km hlaup – 1.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
- 5 km og 10 km hlaup – 2.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
Á heimasíðu hlaupsins www.flensborgarhlaup.is má fá nánari upplýsingar um hlaupið og nákvæma lýsingu á hlaupaleiðum.