FH-ingar eru komnir í úrslit Íslandsmótsins í handknattleik karla eftir sigur á Haukum í kvöld í háspennuleik.
Haukar byrjuðu betur og komust í 3ja marka forystu. Þá var komið að FH-ingum sem kafsigldu Hauka og komust mest í 6 marka forystu. En Haukar komu til baka í seinni hálfleik og undir lokin var aðeins eins marks forysta FH.
Haukar áttu möguleik á að jafna en Daníel Freyr Andrésson varði meistaralega í tvígang og FH sigraði 36-35.
Þetta var fjórði leikur liðanna en Haukar unnu leik nr. 2 en FH hina.
Mæta FH-ingar Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.




