Tækniskólinn og Hafnarfjarðarbær hafa sent frá sér sameiginleg yfirlýsingu þar sem fram kemur að hætt sé við ákvörðun um að byggja Tækniskólann við suðurhöfnina í Hafnarfirði.
„Tækniskólinn og Hafnarfjarðarbær hafa undanfarin ár unnið að framtíðaruppbyggingu skólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði í samræmi við samkomulag við ríkið.
Hafnarfjarðarbæ hefur ekki tekist að afhenda Tækniskólanum lóðina sem fyrirhuguð er undir skólann í tæka tíð og óvíst er hvenær af því getur orðið. Af þeim sökum hefur undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar þegar tafist um marga mánuði.
Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn eru sammála um að ekki sé svigrúm til frekari tafa á verkefninu. Tækniskólinn og aðrir hagaðilar verkefnisins munu því nú kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu.
Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn leggja áfram áherslu á gott samstarf og að næstu skref verði tekin með faglegum og farsælum hætti. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem þeirri vinnu miðar áfram.“
Ekki hefur tekist að kaupa upp þau hús og lóðir sem eru á væntanlegri lóð Tækniskólans en eigendur hafa sakað Hafnarfjarðarbæ að bjóða jafnvel verð undir markaðsverði.




