Könnun á fylgi flokkanna í Hafnarfirði varð gerð af Maskínu fyrir Vísi, dagana 22.-27. apríl. Var könnunin birt á Vísi í dag.

Þar kemur ýmislegt merkilegt í ljós en skv. henni er Viðreisn hástökkvarinn, sem meira en tvöfaldar fylgi sitt, úr 9,1% í síðustu kosningum í 22,4%.
Samfylkingin er stærsti flokkurinn skv. könnuninni með 24,2% fylgi en flokkurinn fékk 29% fylgi í síðustu kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar mestu, fer úr 30,7% í síðustu kosningum í 22,1% og Miðflokkurinn fer úr 2,8% í 9,7% sem er hlutfallslega mesta aukningin og næði flokkurinn inn einum bæjarfulltrúa.
Framsóknarflokkurinn bætir örlítið við sig fylgi, fer úr 13,7% í 14,9% sem myndi ekki breyta fjölda bæjarfulltrúa.
Vinstrið fengi samkvæmt þessari könnun 6,8% fylgi en VG fékk 4,3% í síðustu könnun.
Geta þarf þess að í síðustu kosningum buðu Píratar og Bæjarlistinn fram sem fengu samtals 7,1% atkvæða.




