Nýlega var kosið í nefndir og ráð Hafnarfjarðarkaupstaðar og meðal annars í menningar- og ferðamálanefnd, en kosið er árlega.
Nefndin, sem til fjölda ára hefur verið skipuð konum í meirihluta er á þessu kjörtímabili skipuð tveimur körlum og einni konu. Ekki kemur fram hver kosinn var formaður nefndarinnar en líklegt má telja að Guðbjörg Oddný sé áfram formaður.
Á síðasta kjörtímabili voru a.m.k. um tíma aðeins konur í nefndinni og aðeins einn karl varafulltrúi. Kjörnir fulltrúar í nefndinni voru þá 5 konur og einn karl.
Nú eru karlarnir 4 og konurnar tvær
Eftirtaldir voru kjörnir aðalfulltrúar:
- Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hraunbrún 48 (D)
- Jón Atli Magnússon, Norðurvangi 6 (B)
- Sigurður Þ. Ragnarsson, Eskivöllum 5 (S)
Varafulltrúar voru kjörnir:
- Hugi Halldórsson, Klukkubergi 6 (D)
- Alexander Árnason, Háholti 10 (B)
- Sigrid Foss, Arnarhrauni 40 (S)
Uppfært 4.9.2024: Nefndin hefur verið skipuð körlum að meirihluta þetta kjörtímabil.