Maður á svörtum leigubíl vildi sýna barni spjaldtölvu

Stúlkan forðaði sér og hljóp í burtu

Setbergsskóli

Stjórnendur Setbergsskóla vara börn við ökumanni á svörtu leigubíl sem hafi verið á ferli í hverfinu. Bílstjóri bílsins virðist hafa náð tali af stúlku og viljað sýna henni ipad. Stúlkan brást hárrétt við og hljóp í burtu. Lögreglu var gert viðvart.

Uppfært: Gerðist þetta í Birkibergi og er ökumaðurinn sagður vera dökkhærður og hafa verið með sólgleraugu.

Viðvörunarorð skólastjórnenda Setbergsskóla sem send var öllum foreldrum:

„Ef bíll stoppar og reynt er að lokka börn inn í hann er mikilvægt að brýna fyrir börnunum að hlaupa í gagnstæða átt við bílinn til að koma í veg fyrir að ökumaður nái svo glatt að snúa bílnum við og elta. Einnig er mikilvægt að segja þeim að fela sig ekki í skotum eða þar sem fáir eru á ferli heldur hlaupa í átt að einhverju sem gæti veitt þeim skjól, t.d. að íbúðarhúsi, heimili þeirra, skóla, íþróttahúsi eða þar sem annað fólk er á ferli og æpa hátt og láta vita að ókunnugur sé að elta þau. Það eru minni líkur á að hinn ókunnugi þori að elta æpandi barn heldur en ef barnið hleypur hljóðlaust og dauðskelkað í burtu. Auðvitað er alltaf gagnlegt að ná niður bílnúmeri.

Það er aldrei of varlega farið svo við skulum ræða þetta við börnin okkar.“

Ummæli

Ummæli

Skilja eftir athugarsemd

Please enter your comment!
Please enter your name here