Haukar taka á móti Val í árlegum leik Íslands- og bikarmeistara karla í meistarakeppni Handknattleikssambands Íslands.
Leikið verður að Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19.30.
Haukar halda svo til Grikklands á fimmtudaginn þar sem liðið leikur báða leiki sína í fyrstu umferð Evrópukeppninnar í handbolta. Mæta Haukar A.C. Diomidis Argous 3. og 4. september.