fbpx
Föstudagur, apríl 19, 2024
HeimFréttirHægt að sækja um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs barna á tekjulágum...

Hægt að sækja um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs barna á tekjulágum heimilum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga.

Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið í ár og 2021 en hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum.

Styrkina er hægt er að nota til  niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélögin munu annast afgreiðslu styrkumsókna og setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni, félags-og barnamálaráðherra í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu að Covid-19 faraldurinn hafi haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu. „Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og það á sérstaklega við um fjölskyldur í neðri hluta tekjudreifingarinnar. Rannsóknir sýna að íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og því er gríðarlega mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins,” segir Ásmundur Einar í tilkynningunni.

Þá segir að rannsóknir hafi sýnt að mikilvægt sé að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2