Göngustígur með Reykjanesbraut að Kauptúni verður lokaður vegna stækkunar IKEA frá og með deginum í dag, 7. nóvember, og í að hámarki tvær vikur eða til 21. nóvember.
Göngustígurinn verður færður í nýja legu.
Sett verður girðing þvert á stíginn við ljósin hjá Skessunni með hjáleiðarmerki sem beinir umferð norður fyrir Reykjanesbraut.