HeimFréttirAtvinnulífRekstur Fjarðarfrétta seldur til nýs aðila

Rekstur Fjarðarfrétta seldur til nýs aðila

Eftir 25 ára störf við útgáfu bæjarblaðs í Hafnarfirði hefur Guðni Gíslason, ritstjóri og eigandi Hönnunarhússins ehf. og útgefandi Fjarðarfrétta, ákveðið að láta staðar numið í lok ársins.

Hefur Hönnunarhúsið ehf. og Vissa ráðgjöf ehf. komist að samkomulagi um að Vissa ráðgjöf kaupi rekstur blaðsins og taki við rekstrinum frá og með 18. desember næstkomandi.

Skemmtilegur tími

„Þetta hefur verið skemmtilegur, gefandi og á stundum krefjandi tími að koma að rekstri bæjarblaðs í Hafnarfirði, fyrst sem ritstjóri og með umsjón á útgáfu Fjarðarpóstsins, sem var í eigu Keilis útgáfufélags og síðustu 10 árin sem útgefandi og ritstjóri bæjarblaðsins Fjarðarfrétta og Fjardarfrettir.is,“ segir Guðni Gíslason. „Það er mér mikils virði að útgáfa blaðsins haldi áfram og ég er viss um að hún verði í góðum höndum hjá Ágústi Bjarna Garðarssyni, eigenda Vissu ráðgjafar. Útgáfa bæjarblaðs er mikilvægur hverju sveitarfélagi og ég hef fulla trú á að hægt verði að efla blaðið og fréttavefinn enn fremur með góðu samstarfi við fyrirtæki í bænum, bæjarbúa og bæjaryfirvöld sem gætu nýtt sér svona blað mikið betur.“

Guðni mun aðstoða við yfirfærsluna og eftir þörfum við gerð fyrstu blaðanna.

Fjölmörg tækifæri

„Fjarðarfréttir eiga sér langa og sterka sögu í Hafnarfirði og mér finnst bæði spennandi og ákveðin ábyrgð fólgin í því að taka við keflinu. Guðni hefur byggt miðilinn upp og haldið honum úti af miklum krafti í gegnum árin og það er mikilvægt fyrir mig að byggja áfram á þeim trausta grunni sem fyrir er.

Á þeim góða grunni sé ég jafnframt fjölmörg tækifæri til að efla Fjarðarfréttir enn frekar. Þar horfi ég sérstaklega til þess að tengja betur saman prentblaðið, vefmiðilinn og samfélagsmiðlana þannig að miðlarnir vinni meira saman og myndi eina sterka heild. Með því tel ég að við getum aukið sýnileika efnisins, náð betur til Hafnfirðinga og skapað enn öflugri vettvang fyrir fréttir, mannlíf og það sem er að gerast í bænum.

Kaupin eru jafnframt góð viðbót við starfsemi Vissu ráðgjafar og ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni. Ég hlakka ekki síður til samstarfsins við fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga í Hafnarfirði. Markmiðið er skýrt: að byggja áfram upp öflugan og lifandi hafnfirskan fjölmiðil sem segir frá fólkinu, fyrirtækjunum og lífinu í bænum,“ segir Ágúst Bjarni Garðarsson, eigandi Vissu ráðgjafar.

Skifað var undir kaupsamninginn í dag.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2