Föstudagur, maí 16, 2025
HeimÁherslugreinFjölmenni í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar i miðbænum - Myndasyrpa

Fjölmenni í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar i miðbænum – Myndasyrpa

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar var hlaupið í dag á Sumardeginum fyrsta eins og venjulega.

Frjálsíþróttadeild FH sá um framkvæmd hlaupsins sem fyrr og í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ.

Veðrið lék við keppendur sem og áhorfendur, sól og 13°C hiti. Þau yngstu hlupu eftir Strandgötunni er þeir eldri hlupu 800 m hring um Strandgötu og Austurgötu. Langflestir voru í yngstu flokkunum.

Keppt var í fimm aldursflokkum drengja og stúlkna og hlutu allir verðlaunapening er í mark var komið. Fyrsti í hverjum flokki fékk svo bikar en eftirtalin voru í fyrstu þremur sætunum í hverjum flokki:

Eyþór Tómasson og Viktoría Víðisdóttir

Drengir 6 ára og yngri

1. Eyþór Tómasson
2. Emil Davíðsson
3. Vikingur Hrafn Björgvinsson

Stúlkur 6 ára og yngri

1. Viktoría Víðisdóttir
2. Júlía Erlingsdóttir
3. Fríða Ásgeirsdóttir

Embla Björg Rúnarsdóttir og Óskar Þór Atlason.

Drengir 7 – 8 ára

1. Óskar Þór Atlason
2. Baldvin Snær Harðarson
3. Gabríel Mangi Sverrisson

Stúlkur 7 – 8 ára

1. Embla Björg Rúnarsdóttir
2. Lísa María Andradóttir
3. Ósk Óskarsdóttir

Hilmar Berg Kristófersson og Sigyn Björnsdóttir.

Drengir 9 – 10 ára

1. Hilmar Berg Kristófersson
2. Logi Gunnarsson
3. Emil Frank Egilsson

Stúlkur 9 – 10 ára

1. Sigyn Björnsdóttir
2. Karólína Víðisdóttir
3. Tinna Rut Adamsdóttir

Rakel Sif Árnadóttir og Baldur Darri Aronsson.

Drengir 11 – 12 ára

1. Baldur Darri Aronsson
2. Sólber Elí Jónsson
3. Dagur Ásgeirsson

Stúlkur 11 – 12 ára

1. Rakel Sif Árnadóttir
2. Elísabet Una Jakobsdóttir
3. Kara Bríet Svavarsdóttir

Snævar Dan Vignisson og Auður Jónsóttir

Drengir 13 – 14 ára

1. Snævar Dan Vignisson
2. Dagur Logi Norðdahl Atlason
3. Jónatan Davíðsson

Stúlkur 13 – 14 ára

1. Auður Jónsdóttir
2. Gerður Lind Pálmadóttir
3. Ríkey Ósk Baldursdóttir

Frjálsíþróttadeild FH stóð fyrir endurstofnun Víðavagnshlaups FH árið 1959 en upplýsingar vantar um fyrri hlaup.

Myndasyrpa

Smelltu á mynd til að sjá hana stærri og flettu áfram.

Ljósmyndir: © Guðni Gíslason

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2