Tvö ný Íslandsmet og tvö Íslandsmet unglinga voru sett um helgina í Cube-mótinu í Ásvallalaug.
Hinn 20 ára gamli Birnir Freyr Hálfdánarson, Sundfélaumgi Hafnarfjarðar, blómstraði hreinlega í 200 m fjórsundinu. Hann kom í mark á 1,57.57 mín. og bætti þar með 23 ára gamalt Íslandsmet um 0,34 sekúndur sem Örn Arnarson setti 21. mars 2003 í Vestmannaeyjum.
Þá bætti Símon Elías Statkevicius, SH, bæti sitt eigið Íslandsmet í 50 m skriðsundi frá 2025 um 0,02 sekúndur er hann synti á 21,73 sekúndum.
Tvö Íslandsmet unglinga
Denas Kazulis (18 ára) frá Sundráði ÍRB bætti tvö Íslandsmet unglinga. Í 50 metra sundi bætti hann sitt eigið met og í 100 metra sundi bætti hann met Birnis Freyrs Hálfdánarsonar frá 2024 um 0,05 sekúndu.
SH átti stigahæsta sundfólkið
Stigahæstu sundmennirnir hjá körlunum var Birnir Freyr Hákonarson, SH, sem fékk 794 WA-stig (World Aquatics) og hjá konunum var það Vala Dís Cicero, SH, fyrir 200 metra skriðsund (1,58.94) og fékk 777 WA-stig.
Alls kepptu 230 sundmenn frá 13 helstu sundfélögum landsins. Sjö mótsmet voru slegin, margir náðu lágmarkstíma fyrir önnur mót margir náðu sínum bestu tímum.




