HeimFréttirViðskiptiNýtt apótek Lyfju við Norðurhellu opnaði í dag

Nýtt apótek Lyfju við Norðurhellu opnaði í dag

Lyfja opnaði í dag nýtt apótek við Norðurhellu.

Apótekið við Norðurhellu mun meðal annars þjóna íbúum á Völlum, í Skarðshlíð og Áslandi, auk þeirra fjölmörgu sem starfa á nærliggjandi atvinnusvæðum.

Þórbergur Egilsson, forstöðumaður verslanasviðs Lyfju, Helga Margrét Erlingsdóttir, lyfsali Lyfju Norðurhellu og Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju klipptu á borðann

„Við hlökkum til að efla þjónustu við Hafnfirðinga enn frekar með opnun nýs apóteks við Norðurhellu. Apótek gegna mikilvægu hlutverki í nærsamfélaginu og nú sem fyrr leggjum við áherslu á að viðskiptavinir fái persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf þegar þeir leita til okkar,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju.

Apótekið er staðsett við hlið Krónunnar og því hægt að sækja lyf og aðra þjónustu samhliða matarinnkaupum. Þar verður boðið upp á afgreiðslu lyfseðla, ráðgjöf lyfjafræðinga og fjölbreytt úrval apóteks- og heilsuvara ásamt húð- og snyrtivörum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2