HeimFréttirEkki hefði þurft að raska ósnortnu hrauni fyrir Suðurnesjalínu 2

Ekki hefði þurft að raska ósnortnu hrauni fyrir Suðurnesjalínu 2

Breyttar forsendur vegan eldgosa hafa áhrif á áætlanir Landsnets

Snemma á öldinni var ætlun Landsnets að leggja nýja 220 kV háspennulínu samsíða Búrfellslínu 3 frá Sandskeiði en línan liggur sunnan Helgafells og svo Austan Krýsuvíkurvegar og að Hamranestengivirkinu.

Hin nýja lína, Lyklafellslína (Sandskeiðslína) átti hins vegar að fara um Hraunungur þar sem reisa átti í framtíðinni nýtt tengivirki en ekki í Hamranes.

Var þessi lína forsenda fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2, sem átti að liggja frá Hrauntungum. Þegar nýja Lyklafellslínan yrði komin í gagnið átti að fjarlægja Hamraneslínur 1 og 2 frá Geithálsi og að Hamranesi.

Framkvæmdir áttu að hefjast árið 2017. Ekkert varð þó úr því en í mars 2018 var framkvæmdaleyfi, sem Hafnarfjarðarbær gaf út vegan Lyklafellslínu, fellt úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem taldi m.a. að ekki hefði verið sýnt fram á að jarðstrengskostir væru ekki raunhæfir.

Málið tafðist og árið 2020 var nýtt umhverfismat vegna Suðurnesjalínu 2 tilbúið og Landsnet tilbúið að hefja framkvæmdir en hluti leyfisveitenda vildi leggja jarðstreng.
Það ár var svo nýtt umhverfismat vegna Lyklafellslínu í undirbúningi en í því átti að meta möguleika á loftlínu meðfram Búrfellslínur og jarðstreng, að mestu samsíða Bláfjallavegi.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti svo aftur framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 í ársbyrjun 2021, en þá voru framkvæmdir Þegar hafnar og búið að móta línuveg í landi Hafnarfjarðar í óröskuðu hrauni.

Mikil óánægja var með töfiá framkvæmdum sem þýddi að töf yrði á uppbyggingu íbúða í Hamraneshverfi. Höfðu Hamraneslínurnar verið færðar tímabundið árið 2019 og á síðasta ári voru þær settar í jörðu. Í ár á að setja Suðurnesjalínu 1 og 2 í jörðu frá Hamranesi að Hraunhellu.

Mynd af kortavef Landsnets sem sýnir núverandi línur

Hætt við Lyklafellslínu

Hamraneslínurnar sem áttu að hverfa við komu Lyklafellslínu voru þá komnar í jörðu og ekkert verður af Lyklafellslínu. Ástæðan er sögð aukin áhætta vegna hraunrennslis.
Þær línur sem liggja nú og munu liggja að Hamranesi eru Hnoðraholtslína, sem Þegar er komin í jörð á stærstum hluta leiðar sinnar í Hafnarfirði, Hamraneslínur 1 og 2 sem líka eru komnar í jörðu að mestu og Búrfellslína 3.

Frá Hamranesstöðinni muna svo liggja Suðurnesjalína 2, sem mun taka krók til suðurs og liggja yfir áður ósnert hraun, Suðurnesjalína 1, sem verður áfram á núverandi stað en fer í jörðu frá Hamranesi og ca. að Kvartmílubrautinni og Ísallínur 3 og 4 sem nú liggja á ská í NV frá Hamranesi að Ísal en mun liggja samsíða þar sem Suðurnesja lína 1 liggur nú og til norðurs að Ísal. Einnig liggur jarðstrengur að tengivirkinu við Öldugötu.

Svona er áætlað að línurnar liggi síðar á þessu ári

Ísallínur fara ekki í jörðu

Þrátt fyrir samkomulag sem Landsnet og Hafnarfjarðarbær gerðu 9. júlí 2015 um að háspennulínur milli tengivirkisins og álversins í Straumsvík yrðu lagðar í jörðu innan tveggja ára, verða þessar línur áfram loftlínur. Verða þær færðar örlítið fjær byggð og færðar í nýtt stæði á iðnaðarsvæðinu. Þá verða þær á nýjum röramöstrum sem fullyrt er að muni ekki valda hávaðamengun.

Ástæða þess að línurnar fara ekki í jörð er að jarðstrengir hafi minni áreiðanleika, uppfylli ekki samninga við Ísal vegna rekstraröryggis. Kröfur um áreiðanleika og flutningsgetur kalla á þrefalda strenglögn skv. því sem kom frá á upplýsingafundi Landsnet um línurnar. Skoðaður var valkostur á jarðstreng og loftlínu en sá kostur var ekki talinn hagkvæmur og væri trefalt dýrari en loftlína.

Ný möstur

Ný möstur verða á Ísallínu. Stöguð möstur verða frá Hamranesi í Hraunhellu en einpólamöstur frá Hraunhellu að Ísal.

Áhætta á náttúruvársvæði

Í kynningu Landsnets kemur fram að umhverfismat sýni fram á að mikil áhætta fylgi því að hafa tvær mikilvægar línur samsíða á náttúruvársvæði. Suðurnesjalína 1 og 2 munu þó liggja samsíða frá Vogum.

Enn er verið að vinna áhættumat vegna hugsanlegra eldgosa sem geti valdið hraunrennsli í Hafnarfirði en það áhættumat hefur ekki verið kynnt.

Líkan sem gert var af Jarðvísindastofnun 2021 til að meta líkur á hraunflæði.

Í kynningu Landsnets var kynnt kort sem sýndi líkur á hraunflæði en ekki kemur fram hvar líkleg gosupptök væru. Segir Landsnet að niðurstaða úr rannsókn Jarðvísindastofnunar hafi breytt forsendum verkefnis. Tvær samsíða línur og tengipunktur yrðu mjög útsett fyrir náttúruvá: Núverandi Búrfellslína 3, Lyklafellslína og tengipuntur í Hrauntungum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2