Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 15. janúar síðastliðinn tvö framkvæmdaleyfi sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti svo á fundi sínum í síðustu viku. Þessi framkvæmdaleyfi munu marka tímamót í uppbyggingu og öryggi íbúðahverfis og atvinnulífs í Hafnarfirði sem voru orðin löngu tímabær.
Færsla Hamraneslínu
Tafir á niðurrifi Hamraneslínu er ekki í samræmi við uppbyggingaráform bæjarins, þar sem línan liggur við íbúabyggðina Skarðshlíð sem er í uppbyggingu og inn í jaðar fyrirhugaðrar íbúabyggðar í Hamranesi. Af þessu hefur hlotist mikil töf á lóðaúthlutunum á svæðinu. Til þess að línan hindri ekki frekari uppbyggingu var samþykkt að Landsnet fengi framkvæmdarleyfi fyrir breytingu á legu Hamraneslínu og mun háspennulínan færast tímabundið frá byggð og nýbyggingarsvæðum þar til nýtt umhverfismat vegna Lyklafellslínu liggur fyrir. Vonir standa til að framkvæmdir fyrir varanlega Lyklafellslínu hefjist árið 2020. Staðið hefur til að færa háspennulínuna um töluvert skeið og er því miklum áfanga náð með veitingu þessa leyfis, íbúum í Vallahverfi og framtíðaríbúum á svæðinu til mikillar ánægju. Áætlað er að framkvæmdir hefjist fljótlega og ljúki í haust.
Tvöföldun Reykjanesbrautar
Vegagerðinni var veitt framkvæmdarleyfi til að tvöfalda Reykjanesbrautina á kaflanum frá Kaldárselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót með því að byggja nýja akbraut sunnan núverandi vegar. Reykjanesbrautin verður lögð með þriggja metra breiða miðeyju milli akbrauta, grafin niður allt að fjóra metra á tveimur köflum og gerðar verða tvær nýjar göngubrýr yfir Reykjanesbrautina. Samhliða breikkun Reykjanesbrautar verður ráðist í umfangsmiklar aðgerðir til að minnka umferðarhávaða í nágrenni brautarinnar. Hafnarfjarðarbær hefur talað máli tvöföldunar Reykjanesbrautar um árabil og er þetta liður í að tryggja öryggi þeirra sem um brautina fara og leysa umferðarvandann í gegnum Hafnarfjörð. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist á þessu ári og verklok verði haustið 2020.
Við Hafnfirðingar höfum barist um langt skeið fyrir því að koma þessum málum í réttan farveg. Því ber að fagna þessum framkvæmdaleyfum og horfa björtum augum til uppbyggingar sveitarfélagsins og öryggi vegfarenda sem leið eiga um Hafnarfjörð.
Lovísa Traustadóttir
fulltrúi í skipulags- og byggingarráði, varabæjarfulltrúi, D.
Greinin birtist í Fjarðarfréttum, bæjarblaði Hafnfirðinga 31. janúar 2019.