fbpx
Þriðjudagur, mars 19, 2024
HeimUmræðanBaksýnisspegilinn eða framrúðan?

Baksýnisspegilinn eða framrúðan?

Jón Ragnar Gunnarsson skrifar

Sveitastjórnakosningar snúast ekki um pissukeppni oddvita stærstu flokkanna í beinni útsendingu.  Kosningarnar snúast nú sem aldrei fyrr um fólkið sem við kjósendur trúum og treystum til verka, frambjóðendurnar sem eru á bak við tjöldin, skipa ekki efsta sætið, heldur næstu sætin á eftir, einstaklinganna sem koma til með að leiða nefndarstörf og skipulagsmál Hafnarfjarðar.

Hvar viljum við standa og hvert viljum við stefna?

Bæjarútgerðin, HS veitur… hvað á ég að segja? Þetta er allt búið og gert en ætlum við endalaust að vera orðhöggvast yfir því sem þegar hefur gerst.  Tölum frekar um það sem framundan er.

Unga fólkið okkar hefur engan áhuga á fortíðinni, þau hugsa um framtíðina, umhverfismálin, mengun, íþrótta- og tímstundastarf, endurnýtingu, sjálfbærni, fjölmenningasamfélög, frið, jafnrétti allra og svo mætti lengi telja.  Hér á fókusinn að vera.

Hvað verðum um atkvæðin ykkar?

Hafnarfjörður er í þeirri einstöku aðstöðu að geta orðið leiðandi sveitafélag meðal þeirra stærstu í þessum málaflokkum og til þess að vinna þessum málaflokkum meira brautargengi ættum við íbúar Hafnarfjarðar alvarlega að leiða hugann að Bæjarlistanum XL sem er eina óháða framboðið í Hafnarfirði.

Hvert einasta atkvæði sem skilar sér ekki í kjörkassana á laugardag er lóð á vogarskálarnar hjá stærstu flokkunum, tölfræðireglan í sætaskipan eftir kosningar er svo brengluð að ef minni flokkarnir ná ekki tilskyldu hlutfalli atkvæða í kosningunni færist það sæti (sem næstum vannst) til til stærstu flokkanna.

Meirihluti = enginn raunverulegur meirihluti.

Til gamans má nefna að baki þeim 6 sætum sem núverandi meirihluti skipar í Hafnarfirði eru ekki nema 41,7 % atkvæða sem skýrist af þeirri brengluðu tölfræðireglu sem ég nefndi hér að ofan.  Núverandi meirihluti er í raun ekki með neinn meirihluta kjósenda, sætin röðuðust bara á þennan hátt út frá brenglaðri tölfræðireglu.  Við viljum að meirihluti kjósenda nái sínu fólki að, en til þess að svo megi verða þurfið þið að kjósa.  Kosningahlutfall í síðustu kostningum var með minnsta móti.

Hugsum stórt og Setjum X við L.

Jón Ragnar Gunnarsson,
skipar 7.sæti á lista Bæjarlistans í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2