Hurdalsrósin (Rosa ‘Hurdal’) er fremur harðgerð runnarós sem getur orðið 2 – 3 m á hæð en er stundum aðeins um 1 m. Blómin eru skærbleik, hálffyllt og meðalstór.
Rósina má nota sem klifurrós t.d. á grind við vegg. Hún hentar hálfvillt í sumarhúsalóðir t.d. í lúpínubreiðum þar sem nokkurs skjóls nýtur. Fær hún rauðar nýpur og er nánast þyrnalaus.
Hurdalsrósina má fá í gróðarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg.
Nánar um Þöll á Facebook .