Byggingarfulltrúi og garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar minna íbúa á að snyrta trjágróður á lóðarmörkum sínum. Gróðurinn sem vex langt út á gangstéttar og götur getur hindrað bæði sýn og umferð. Það veldur óþægindum og hættu fyrir þau sem leið eiga um.
Hafa þarf í huga er að:
- Umferðarmerki séu sýnileg
- Gróður byrgi ekki götulýsingu
- Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga.
- Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
- Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg
Trjágróðri haldið innan lóðarmarka
Garðeigendum ber samkvæmt byggingarreglugerð að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2 segir:
„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun”