Umdæmisráð kemur í stað barnaverndarnefnda

Frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri Kjósarhrepps, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar og formaður stjórnar SSH, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.

Í gær, 12. desember, skrifuðu bæjarstjórar Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Kjósarhrepps og framkvæmdastjóri SSH undir samning um rekstur sameiginlegs umdæmisráðs barnaverndar sem tekur til starfa nú um áramót.

Umdæmisráðið verður skipað þremur einstaklingum, sálfræðingi, félagsráðgjafa og lögfræðingi sem er jafnframt formaður ráðsins.

Þyngstu málin til umdæmisráða en barnaverndarþjónusta sveitarfélaganna sjá um annað

Sveitarfélögin munu hvert um sig bera ábyrgð á vinnslu barnaverndarmála líkt og verið hefur en ákvörðunarvaldið þegar kemur að þyngsta enda málanna er nú fært til sjálfstæðra stjórnsýslunefnda, þ.e. umdæmisráða, en starfsemi þeirra verður aðskilin frá barnaverndarþjónustu sveitarfélaganna. Umdæmisráðin fá þá afmarkað hlutverk en þau taka eingöngu fyrir barnaverndarmál sem barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna vísa til þeirra, þegar taka þarf íþyngjandi ákvarðanir með úrskurði og samþykki liggur ekki fyrir. Umdæmisráðin munu því t.d. taka ákvarðanir um fóstur, um hvort heimilt sé að beita úrræðum án samþykkis foreldra þegar þörf er á og fjalla um og úrskurða um umgengni kynforeldra við börn sem eru í fóstri.

Sagði Regína Ásvaldsdóttir, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, við undirritunina að miklar væntingar væru bundnar við þetta nýja fyrirkomulag sem væri til þess fallið að tryggja enn frekar faglega málsmeðferð í þessum mikilvæga málaflokki.

Aðdragandi málsins er sá að 1. janúar 2023 koma til framkvæmda breytingar á barnaverndarlögunum sem leiða til þess að barnaverndarnefndir í núverandi mynd verða lagðar niður. Þeirra í stað verða sett á laggirnar umdæmisráð barnaverndar.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku samning sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, um rekstur umdæmisráðs barnaverndar í Kraganum, ásamt viðauka við samninginn og tillögu um ráðsmenn.

Ummæli

Ummæli