Þriðjudagur, febrúar 10, 2026
HeimFréttirStefna á 946 milljóna afgang

Stefna á 946 milljóna afgang

Vatnsveita, fráveita og Hafnarsjóður eiga að skila yfir milljarði í hagnað

Rekstur Hafnarfjarðarkaupstaðar heldur áfram að styrkjast samkvæmt fjárhags­áætlun bæjarins, en gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæð­unnar (A og B hluta) verði jákvæð um rúma tvo milljarða króna árið 2026. Heildartekjur bæjarins eru áætlaðar rúmir 57,3 milljarðar króna á árinu, sem er aukning frá fyrri árum.
Bærinn hyggst fjárfesta fyrir samtals 10,6 milljarða króna í varanlegum rekstrarfjármunum. Þar af munu tæpir 8,3 milljarðar króna renna til fram­kvæmda á vegum sveitarsjóðs (A hluta).

4,7 milljarða kr. lántaka

Til að fjármagna þessar fram­kvæmd­ir er gert ráð fyrir að taka ný langtímalán að fjárhæð 4,7 milljarðar króna.

Heildarskuldir eru áætlaðar 74,9 milljarðar í lok árs 2026 og því um 130% af tekjum sveitarfélagsins.

Miklar tekjur munu skila sér vegna uppbyggingar, en áætlað er að tekjur af byggingarrétti nemi tæpum 3,2 milljörðum króna og gatnagerðar­gjöld muni skila tæpum 2,6 milljörðum króna í bæjarsjóð árið 2026.

Fræðslumál áfram stærsti málaflokkurinn

Líkt og fyrri ár vega fræðslu- og uppeldismál þyngst í útgjöldum sveitarsjóðs. Áætlað er að heildargjöld til þess málaflokks verði rúmir 25,7 milljarðar króna árið 2026. Næststærsti málaflokkurinn er félagsþjónusta, þar sem gert er ráð fyrir útgjöldum upp á rúma 10,4 milljarða króna.

Lífeyrisskuldbindingar og launakostnaður

Laun og launatengd gjöld sam­stæðunnar eru áætluð um 27,1 mill­j­arður króna árið 2026. Auk þess er gert ráð fyrir að breyting á lífeyris­skuldbindingum muni nema rúmum 1,5 milljörðum króna á árinu. Þrátt fyrir þessi gjöld er gert ráð fyrir að handbært fé frá rekstri verði rúmir 2,8 milljarðar króna, sem á að sýna sterka sjóðstreymisstöðu sveitarfélagsins. Þó er handbært fé frá rekstri A-hluta einungis 603 milljónir kr.

Heildareignir Hafnarfjarðar­kaup­staðar í árslok 2026 eru áætlaðar rúmir 113,4 milljarðar króna, á sama tíma og eigið fé bæjarins er áætlað um 38,5 milljarðar króna.

Skoða má fjárhagsáætlunina hér.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2