HeimFréttirAtvinnulífSPAR opnar í Staðarbergi á laugardaginn

SPAR opnar í Staðarbergi á laugardaginn

Fyrstu tvær SPAR verslanirnar opnaðar á laugardaginn

Fyrstu tvær SPAR verslanirnar á Íslandi opna á laugardaginn, 6. júní kl. 12 á hádegi.  Önnur verslunin er í Staðarbergi þar sem Krambúð hefur verið starfrækt um tíma og Iceland þar áður.

Hin opnar við Barónsstíg í Reykjavík þar sem áður var Extra verslun

Opnunin er sögð marka upphaf umfangsmikillar uppbyggingar SPAR hér á landi en síðar í júnímánuði verða opnaðar tvær SPAR verslanir í Kópavogi, í Hófgerði og Búðakór. Síðar í sumar verða síðan opnaðar verslanir við Laugalæk í Reykjavík, á Selfossi, í Búðardal og á Neskaupsstað en á næstu tveimur árum verða verslanir undir merkjum Krambúðar, Kjörbúðar og 10–11 endurnýjaðar og þeim breytt í SPAR verslanir.

Í SPAR verslunum verður lögð rík áhersla á ferskleika, þægindi og gott úrval dagvöru á góðu verði. Með aðgengi að alþjólegu innkaupaneti SPAR munu íslenskir neytendur fá aðgang að fjölbreyttu úrvali vara undir vörumerki SPAR.

SPAR verslanir eru starfræktar í 50 löndum um allan heim og telja rúmlega 13.500  verslanir. Með opnun verslananna tveggja bætist Ísland nú formlega í netkerfi SPAR international..

SPAR er eitt þriggja verslunarvörumerkja sem Samkaup hf. stefnir á að reka á matvörumarkaði. Hin tvö eru Nettó og Prís og verða verslanir fyrirtækisins samtal nærri 60 um allt land. Samkaup er dótturfélag Dranga hf. sem er móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði. Systurfélög Samkaupa eru Orkan og Lyfjaval.

Forstjórar SPAR og Dranga opna búðina í Staðarberg

Forstjóri SPAR International, Tobias Wasmuht,  ásamt Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, munu opna verslunina í Staðarbergi formlega laugardaginn 6. júní kl. 12.

Unnið var hörðum höndum við að innrétta og raða í verslunina í vikunni.

Stórt skref fyrir Samkaup

„Við erum spennt að opna fyrstu SPAR verslanirnar á Íslandi. Samstarfið við þessa öflugu alþjóðlegu verslunarkeðju er stórt skref fyrir Samkaup og mun styrkja bæði vöruúrval og upplifun viðskiptavina okkar, auk þess sem við getum lækkað verð. Við viljum skapa nútímalegar hverfisverslanir þar sem viðskiptavinir geta nálgast ferskar vörur, nýbakað brauð, gott kaffi og tilbúnar máltíðir á einfaldan og þægilegan hátt.

Opnun SPAR verslana er veigamikill áfangi á þeirri leið Samkaupa að verða leiðandi verslunarfyrirtæki hér á landi á matvörumarkaði. Með víðtæku neti verslana undir vörumerkjum Nettó, Prís og SPAR munum við geta komið til móts við ólíkar þarfir okkar viðskiptavina um land allt.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2