fbpx
Fimmtudagur, apríl 18, 2024
HeimFréttirPólitíkSörli undrast tregðu bæjaryfirvalda við að gera samning um reiðhöll

Sörli undrast tregðu bæjaryfirvalda við að gera samning um reiðhöll

Segja reiðhöll á undan knatthúsi á völlum í forgangsröðun ÍBH

Stjórn hestamannafélagsins Sörla hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar í gær um byggingu knattspyrnuhúss á Ásvöllum þar sem greint var frá því að bæjarráð Hafnarfjarðar hefði samþykkt samning um byggingu knattspyrnuhúss á Ásvöllum.

Hafa beðið í marga mánuði eftir svari

„Það verður gleðiefni þegar knattspyrnuhús verður risið á Ásvöllum,“ segir í yfirlýsingunni. „Hins vegar komu þessar fréttir stjórn Sörla verulega á óvart, því í marga mánuði hefur stjórnin leitað eftir samningi við Hafnarfjarðarbæ um byggingu nýrrar reiðhallar, án árangurs.“

Tillaga að nýrri reiðhöll Sörla. Sú gamla til hægri.

Loforð um að virða forgangsröðun ÍBH

„Fulltrúar Hafnafjarðarbæjar, þ.m.t. bæjarstjóri og aðrir kjörnir stjórnendur meirihlutans hafa ítrekað sagt, bæði í ræðu og riti, að ekkert annað komi til greina af hálfu bæjarins en að virða þá forgangsröðun um byggingu íþróttamannvirkja sem samþykkt hefur verið af Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar, þar sem öll íþróttafélög bæjarins eiga hlut að máli. Þegar byggingu nýs körfuboltahúss fyrir Hauka og byggingu nýs knattspyrnuhúss fyrir FH í fullri stærð var lokið var, næsta verkefni á vegum Hafnafjarðarbæjar, bygging reiðhallar fyrir hestamannafélagið Sörla. Svo knatthús fyrir Hauka.“

Sala lóða rennur til uppbyggingar íþróttamannvirkja

Í yfirlýsingunni segir að ljóst sé að hvorki er gert ráð fyrir byggingu reiðhallar eða knatthúss í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 sem samþykkt var fyrir áramót í bæjarstjórn, en vilyrði sé um að sala á lóðum undir íbúabyggð á svæði sem Haukar skiluðu til Hafnafjarðarbæjar, annars vegar og hins vegar af sölu hesthúslóða á félagssvæði Sörla muni renna til uppbyggingar hjá félögunum. Og að fjárveitingar komi til skoðunar þegar fjárhagsáætlun endurskoðast í mars.

„Ekki búa öll íþróttafélög bæjarins svo vel að geta skilað byggingarlandi til bæjarins eða látið skipuleggja lóðir til að selja. Það er frábært að geta hjálpað til við hröðun framkvæmda með fé sem fæst með þessum hætti, en þetta eru samt sem áður sameiginlegir sjóðir Hafnfirðinga og því á fagleg forgangsröðun alltaf að ráða. Það á ekki að vera hægt að kaupa sig fram fyrir röðina. Íþróttafélögin eiga ekki tilkall til þessara fjármuna. Ráðstöfun þeirra er ákvörðun kjörinna fulltrúa hverju sinni.“

Reiðhöll á undan knattspyrnuhúsi var samþykkt af Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar, ÍBH.
Í yfirlýsingunni segir að það starf sem fram fari innan ÍBH sé mjög umfangsmikið og mikilvægt fyrir allt íþróttalíf í Hafnarfirði. Þar sé reynt að taka faglega á þeim verkefnum sem íþróttahreyfingin í Hafnarfirði fjallar um og mynduð tengsl milli íþróttafélaga og samstarf milli þeirra um uppbyggingu alls íþróttalífs í Hafnarfirði. Bent er á að eitt af verkum ÍBH sé að vinna að forgangsröðun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hafnarfirði. Niðurstaða þess samstarfs á síðasta þingi ÍBH hafi m.a. verið að staðfesta að bygging nýrrar reiðhallar Sörla ætti að vera í forgangi. Þá hafði þegar verið lokið við byggingu nýs körfuboltahúss fyrir Hauka og lokið fjármögnun nýs knatthúss fyrir FH í fullri stærð.

„Mikil samstaða náðist um þetta verkefni meðal smærri íþróttafélaga í Hafnarfirði, sem flest öll hafa horft á nær allt framkvæmdafé Hafnarfjarðarbæjar í íþróttamálum fara til tveggja félaga.

Það er ljóst að íþróttahreyfingin í Hafnarfirði hefur ákveðið að næsta framkvæmd sem ráðist verði í, sé bygging reiðhallar fyrir Hestamannafélagið Sörla. Stjórnvöld bæjarins hafa sagst ætla að fylgja tillögum íþróttahreyfingarinnar og við bindum við það vonir að staðið verði við það samkomulag. Ef ekki, þá væri það þvert gegn samþykktum ÍBH um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hafnarfirði, svik á þegar gefnum loforðum og blaut tuska í andlit allra þeirra íþróttafélaga sem koma að faglegri vinnu innan ÍBH. Það ætlum við engum að óreyndu.“

Krafa um að ljúka samningum um uppbyggingu reiðhallar

Stjórn Sörla óskar eftir að bæjaryfirvöld ljúki við samninga við Sörla um byggingu reiðhallar sem allra fyrst, að skipaður verði framkvæmdarhópur og að öllu ferli varðandi hönnun og undirbúning verði hraðað.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2