fbpx
Fimmtudagur, nóvember 7, 2024
target="_blank"
HeimFréttirÓlga og reiði meðal ófaglærðra í leikskólum Hafnarfjarðar

Ólga og reiði meðal ófaglærðra í leikskólum Hafnarfjarðar

Ætlað að sinna vinnu leikskólakennara þegar þeir eru í fríi

Það er mikil ólga í og reiði meðal ófaglærðs starfsfólks í leikskólum bæjarins, vegna áforma um breytingar á starfinu.

Breytingarnar tengjast kjarasamningum leikskólakennara, þar sem þeim er gert mögulegt að safna upp vinnutímastyttingu til að lengja jólafrí, páskafrí og sumarfrí, á meðan almennt starfsfólk kemur til með að halda úti starfinu í leikskólanum á meðan.

Í gær efndi Verkalýðsfélagið Hlíf til fundar um málið og mætti á þriðja hundrað félagsmenn.

Í bígerð er að breyta skóladeginum í leikskólum, þann tíma sem kennararnir eru á staðnum, þannig að þeir eiga að geta gengið út kl. 14. Á fundinum kom fram að það sem ófaglærða starfsfólkinu svíður er að börnin eiga þá að vera í umsjá þeirra einna eftir það.

Þó nokkur hiti var á fundinum og var framganga bæjarins hörmuð, ekki síst að ekkert samráð var haft við undirbúning á þessum breytingum.

Þá kom fram í umræðunni að þessar breytingar væru viðbrögð við flótta kennara úr leikskólanum í kjölfar „leyfisbréfsins“ sem gerir leikskólakennurum mögulegt að kenni m.a. í grunnskólum. Kom fram að fjölmargir kennarar hafi fært sig yfir í grunnskólann og að nú eigi að breyta leikskólanum í svipað módel og grunnskólinn – en bjóða upp á gæslu, sambærilegt við frístund í grunnskólum, á þeim tímum sem leikskólakennarar eru ekki til staðar.

Breytingarnar munu hafa mikil áhrif á störf ófaglærðra leiðbeinenda, sem eru meira en helmingur starfsfólksins og í raun getur verið til mikilla vandræða fyrir foreldra barna í leikskólum þar sem hlutfall leikskólakennara er mjög hátt.

Í lok fundarins var eftirfarandi ályktun samþykkt einróma.

„Mjög fjölmennur félagsfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar með leiðbeinendum í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar, ásamt stjórn og trúnaðarmönnum félagsins, harmar framgöngu bæjarins við undirbúning breytinga á skipulagi leikskólastarfs í bænum.

Almennt starfsfólk hefur aldrei átt þess kost að velja fulltrúa til þátttöku í undirbúningnum og áform hafa hvorki verið kynnt fyrir félaginu né starfsfólkinu sjálfu, fyrr en eftir að forystumenn félagsins kröfðust þess. Forsvarsmenn bæjarins hafa blákalt haldið því fram á kynningarfundum með starfsfólki að þeir hafi kynnt forystu Hlífar breytingarnar með fullnægjandi hætti. Það er einfaldlega ósatt.

Af þeim kynningum sem þó hafa farið fram, er ljóst að enn eru fjölmargir endar lausir og enn er mörgum spurningum ósvarað.

Það liggur fyrir að ríflega helmingur starfsfólks í leikskólum Hafnarfjarðar er félagsmenn í Verkalýðsfélaginu Hlíf. Það er ennfremur ljóst, að áformaðar breytingar munu hafa mikil áhrif á þeirra störf. Það er því í hæsta máta óeðlilegt að breytingar af þessari stærðargráðu séu undirbúnar án þess að nokkurt samráð sé haft við þennan hóp.

Áform bæjarsins hafa í för með sér mikla óvissu og það er augljóst að málið hefur ekki verið hugsað alla leið. Þegar ekki er talað við helming hópsins sem málið varðar, er hætt við að talsvert vanti upp á heildarmyndina.

Við fögnum því að einstakir starfshópar nái árangri í sinni kjarabaráttu. Við höfnum því aftur á móti, að viðsemjandinn, Hafnarfjarðarbær, velti auknu álagi sem af þessu hlýst á almennt starfsfólk leikskólanna.

Ekkert hefur komið fram á upplýsingafundum bæjarins um möguleg áhrif áformaðra breytinga á börnin í leikskólanum, þótt um það hafi verið spurt. Rót, óvissa og óstöðugleiki í starfsmannahaldi eru örugglega ekki það besta fyrir yngstu börnin.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2