Gaman væri ef einhver þekkti til þessarar myndar, af flugbáti framan við Drafnarslipp.
Árni Jón Konráðsson fann hana fyrir mörgum árum í gömlu dóti tengdaföður síns, Helga Kr. Guðnasonar, sem lengi bjó á Holtsgötu.
Á bátnum gæti staðið TF-RVK en það er alls ekki víst. Brottför flugbátsins hefur greinilega vakið mikla athygli.