HeimFréttirMenning og mannlífSinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar gladdi grunnskólanemendur

Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar gladdi grunnskólanemendur

Hljómsveitin heldur til Katalóníu í maí

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar bauð fyrstu tveimur bekkjum grunnskóla á tónleikasýningu í tilefni af 75 ára afmæli tónlistarskólans þann 7. mars síðastliðinn og komu yfir 700  grunnskólabörn til að hlýða á flutninginn. Tónleikarnir voru síðan endurteknir tvívegis daginn eftir í Hörpu fyrir fullu húsi.

Sögumaður var Valgerður Guðnadóttir söng og leikkona og hljómsveitarstjóri var Ármann Helgason. Myndum og teikningum  var varpað á skjá og Maxímús Músíkús kom í heimsókn í lokin sem vakti mikla lukku.

Klassíska tónlistin sem heyrðist í sögunni var Ravel Bolero, Beethoven upphafið að 5. sinfóníunni, Copland Fanfare, Sprengisandur og að sjáfsögðu Maxalagið.

Mikil ánægja var með tónleikana að sögn aðstandenda sem segja hljómsveitina eiga mikið hrós skilið fyrir glæsilega frammistöðu í þessari skemmtilegu tónleikasýningu.

Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar

Tónleikaferð til Katlóníu

Næsta verkefni Hljómsveitarinnar er tónleikaferð á hljómsveitarfestiavalið RITMIKS í Katalóníu í lok maí þar sem um 200 hljómsveitir frá 16 löndum taka þátt og hefur Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar verið valin til að leika á nokkrum tónleikum hátíðarinnar.

Það eru því spennandi og metnaðarfull verkefni sem þessi frábæra hljómsveit hefur verið að vinna að í vetur.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2