Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði.
Fyrsta atvikið átti sér á eða við Víðistaðatún í byrjun mánaðarins og tæpri viku síðar var álíka atvik við Engidalsskóla.
Síðastliðin föstudag var tilkynnt um karlmann nærri Lækjarskóla og hann sagður elta barn og bjóða því nammi.
Og í gærmorgun, miðvikudag, veittist maður að stúlku á göngustíg á milli Miðvangs og Víðistaðaskóla.
Málin hafa valdið áhyggjum, eðlilega, en lögreglan hefur aukið eftirlit sitt í Hafnarfirði vegna þeirra. Rannsókn lögreglu snýr m.a. að því hvort um sama mann var að ræða í öll skiptin, en hún leggur jafnframt áherslu á að tilkynnt sé um málin eins fljótt og verða má og þá í 112.
Betra er að hringja í lögregluna einu sinni of oft heldur en einu sinni of sjaldan
„Slíkar tilkynningar eru ávallt teknar mjög alvarlega og hjálpa lögreglu að bregðast hratt við. Berist þær (tilkynningar) nokkrum klukkutímum eftir atvik, eða daginn eftir, torveldar það leitina að gerandanum. Að endingu er minnt á að betra er að hringja í lögregluna einu sinni of oft heldur en einu sinni of sjaldan,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni
Móðir í Norðurbænum lýsir atvikinu í gær svona: „Dóttir mín var á leið í Víðistaðaskóla í morgun (örlítið of sein) og maður kemur aftan að henni, tekur hana hálstaki og fyrir munninn. Hún nær að bíta hann, sparkar aftur fyrir sig og nær þá að rífa sig lausa. Þegar hún sparkar virðist hann blóta en ekki á tungumáli sem dóttir mín skilur. Lýsing hennar passar að nokkru leyti við manninn sem varað var við í byrjun maí en þessi var í svartri úlpu með hettu sem huldi að hluta andlit sitt en ekki appelsínugulri.
Þetta var nálægt sparkvellinum við Víðistaðaskóla en rétt fyrir utan það svæði sem myndavélar skólans ná á.“
Þann 1. maí lýsti önnur móðir í Norðurbænum svipuðu atviki: „Sonur minn 9 ára var á leiðinni á Víðistaðatún fyrir ca. klst. og var ca. á göngustígnum hjá raðhúsunum sem eru í byggingu hjá skátaheimilinu, þegar maður var allt í einu kominn fyrir aftan hann. Maðurinn labbaði svo hratt að honum og reif fast í vestið sem hann var í þannig að hann fór úr því. Sonur minn náði að rífa af honum vestið og hljóp á hoppubelginn til vinar síns. Maðurinn elti hann þangað og elti þá svo ca hálfa leið heim líka.
Hann var ca. 30-40 ára, með svart hár og yfirvaraskegg og ekki íslenskur hélt hann, aðeins dekkri á hörund. Var í appelsínu gulri úlpu. Við erum búin að láta lögguna vita ásamt því að leita um allt hverfi en fundum hann ekki. Vildi bara láta vita svo aðrir geti verið á varðbergi og rætt við sín börn og endilega látið lögregluna vita ef þið sjáið einhvern sem passar við lýsinguna.“




