Taekwondo bardagamaðurinn Leo Anthony Speight úr Björk og körfuboltakonan Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum eru voru útnefnd íþróttafólk ársins á íþróttahátíð sem haldin var í íþróttahúsinu við Strandgötu í gær.
Leo Anthony Speight

Leo Anthony úr Björk hefur um árabil verið okkar öflugasti Taekwondo bardagamaður og verið kosinn Taekwondomaður Íslands fimm sinnum. Hann var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd á HM í Kína á árinu, er ríkjandi Íslandsmeistari og er margfaldur Norðurlandameistari. Hann er fastamaður í íslenska landsliðinu í bardaga og komst á pall með því á fimm mótum á þessu ári þangað til að meiðsli gerðu vart við sig á haustmánuðum. Leo var valinn í hóp Íslendinga sem fær styrk frá Ólympíusamhjálpinni fram að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 og er í Ólympíuhópi ÍSÍ.
Þóra Kristín Jónsdóttir

Körfuboltakonan Þóra Kristín hefur leitt lið Hauka til deildarmeistara- og Íslandsmeistaratitils á árinu, og er auk þess lykilkona í íslenska landsliðinu þar sem hún er fyrirliði ásamt Söru Rún Hinriksdóttur. Á árinu var Þóra valin leikmaður ársins í úrvalsdeild kvenna sem og besti leikmaður úrslitakeppninnar þar sem Haukar hömpuðu titlinum. Það er afar sjaldgæft að sami leikmaðurinn sé valin besti leikmaður tímabilsins og svo leikmaður úrslitakeppninnar.




