HeimFréttirLandssamband hjólreiðamanna mótmælir samningum Hafnarfjarðarbæjar við rafhjólaleigur

Landssamband hjólreiðamanna mótmælir samningum Hafnarfjarðarbæjar við rafhjólaleigur

Landssamtök hjólreiðamanna hefur lagt inn erindi til Hafnarfjarðarbæjar vegna mótmæla samtakanna við samninga Hafnarfjarðarkaupstaðar við leigufyrirtæki með rafhlaupahjól, m.a. sérstaklega Hopp og ZOLO.

Hvetur Landssamtök hjólreiðamanna eindregið til þess að slíkir samningar verði ekki gerðir, framlengdir eða endurnýjaðir að óbreyttum forsendum.

Óska samtökin eftir samtali við sveitarfélagið um þau vandamál sem leigurafhlaupahjól hafa skapað, sérstaklega illa lögð rafhlaupahjól og leggja fram tillögur til úrbóta.

Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði í gær erindinu til skoðunar á umhverfis- og skipulagssviði.

Þann 13. janúar 2021 samþykkti umhverfis- og framkvæmdaráð drög að samningi milli Hafnarfjarðarbæjar og Hopp Mobility ehf. um leyfi til reksturs stöðvalausra deilileigu rafhlaupahjóla. Heimilaði ráðið umhverfis- og skipulagssviði að ganga til samninga. Sá samningur hefur ekki verið birtur og hvergi er neitt að finna um samninginn í fundargerðum bæjarins.

Í erindi Hopp Mobility segir m.a.: „Eftir að opnað hefur verið á nýju svæðunum og hjólin farin að sjá notkun mun sjálfvirkur hugbúnaður sýna ítarlega hvar mesta eftirspurn er eftir hjólum og hvar offramboð gæti verið. Starfsmenn Hopp munu þá dreifa þeim eftir því og passa uppá að ekkert svæði sé með of mörg eða of fá hjól. Þetta veitir hverju svæði góða og áreiðanlega þjónustu án þess að hjólin valdi óþægindum.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2