Hjartasteinn til heiðurs Þórhalli Sigurðssyni

Þriðji Hjartasteinninn í gangstéttinni framan við Bæjarbíó

Hjartasteinn til heiðurs leikaranum, söngvaranum, tónskáldinu og skemmtikraftinum og Gaflaranum Þórhalli Sigurðssyni var lagður í gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó sl. fimmtudag.

Hjartasteininn hlýtur Laddi fyrir leikinn, gleðina og skemmtunina sem hann hefur fært öllum aldurshópum um allt land um árabil.

Kór Öldutúnsskóla söng lagið Snjókorn falla sem Laddi gerði frægt.

Nánasta fjölskylda og fjölmargir aðdáendur Ladda voru viðstaddir afhjúpun hjartasteinsins þar sem 50 barna kór Öldutúnsskóla söng lag sem Laddi gerði frægt á Íslansku, Snjókorn falla en Jónatan Garðarsson gerði íslenska textann.

Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi og Laddi afhjúpa hjartasteininn

Valdimar Víðisson, formaður bæjarráðs aðstoðaði Ladda við af­hjúp­unina sem var mjög hrærður, var aldrei þessu orðlaus og sagði einfaldlega takk.

Laddi með fjölskyldu sinni eftir afhjúpunina.

Þessa dagana stendur yfir sýning í Bæjarbíói sem kennd er við þá félaga og byggir að hluta til á 75 ára afmælissýningu Ladda.

Landskunnur Gaflari

Þórhallur Sigurðsson

Þórhallur SigurðssonLaddi er landsmönnum flestum að góðu kunnur og þá ekki síst fyrir sköpun sína á fjöldanum öllum af  karakterum sem margir kannast við. Eiríkur Fjalar, Saxi læknir, Skúli rafvirki, Magnús bóndi, Elsa Lund og Marteinn Mosdal eru meðal þessara karaktera og vilja margir meina að einhverjir þeirra séu fæddir í brandarabænum Hafnarfirði líkt og Laddi sjálfur. Laddi hefur gefið út plötur, leikið í kvikmyndum og tekið þátt sem handritshöfundur og/eða leikari í áramótaskaupum og fjölda þátta sem yljað hafa andann og glatt hafa landann um áratuga skeið. Laddi tók þátt í stofnun Spaugstofunnar árið 1985 og starfaði með hópnum fyrstu árin. Meðal hans helstu afreka eru Heilsubælið, Stella í orlofi, Stella í framboði, Löggulíf, Magnús, Regína, Íslenski draumurinn, Amma Hófí og ljúfsáru gamanþættirnir Jarðarförin mín og Brúðkaupið mitt hvar fæðingarbærinn Hafnarfjörður er í lykilhlutverki. Laddi hefur einnig talsett mikinn fjölda kvikmynda og teiknimynda og afrekaði það m.a. að talsetja allar teiknimyndirnar um Strumpana einn síns liðs.