Föstudagur, maí 16, 2025
HeimFréttirHægt að fá ókeypis moltu

Hægt að fá ókeypis moltu

Hafnfirðingar hafa staðið sig vel við að flokka matarleifarnar og geta notið afrakstursins.

Hægt er að fá ókeypis moltu úr GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU. Moltan fæst við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.

Molta er öflugur og hollur jarðvegsbætir sem nærir jarðveginn. Hún er ólík mold að því leiti að hún inniheldur ekki nein ólífræn efni, eins og sand eða möl.

Hringrásin byrjar í eldhúsinu

GAJA molta er ætluð til notkunar utanhúss. Hún henti vel til notkunar á akra, lóðir, græn svæði í þéttbýli, beð og matjurtagarða. Moltan sé sterk og bein snerting óblandaðrar moltu við rætur plantna sé ekki æskileg. GAJA molta er framleidd í samræmi við starfsleyfi Matvælastofnunar og skráð sem lífrænn áburður.

Hringrásin byrjar í eldhúsinu. Hægt er að fá moltuna á endurvinnslustöðvum SORPU við Breiðhellu, Sævarhöfða og Ánanaust.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2