Miðvikudagur, ágúst 20, 2025
HeimFréttirForeldraráð Hafnarfjarðar hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Foreldraráð Hafnarfjarðar hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í 30. sinn við hátíðlega athöfn í Herkastalanum i gær, 22. maí.

Foreldraráð Hafnarfjarðar hlaut Foreldraverðlaunin að þessu sinni fyrir verkefnin Símafrí og Horfumst í augu.

Einnig voru veitt hvatningarverðlaun til Hörðuvallaskóla fyrir verkefnið Tengslatorg.

Dugnaðarforkur Heimilis og skóla

Vala Steinsdóttir, formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar var valin Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2025, en þau verðlaun hlýtur einstaklingur sem hefur lagt sérlega mikið af mörkum í þágu nemenda og foreldra.

Tekið var við tilnefningum frá almenningi en sérstök dómnefnd fór yfir allar tilnefningar og valdi verðlaunahafa. Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands ávarpaði samkomuna og afhenti verðlaunin.

Í tilkynningur frá Heimili og skóla segir að mikilvægt sé að vekja athygli á því sem vel er gert í skólasamfélaginu en markmið Foreldraverðlauna Heimilis og skóla er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer innan leik-, grunn- og framhaldsskóla á Íslandi og þeim mörgu verkefnum sem stuðla að öflugu og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins. Foreldraverðlaunin minna á hverju samtakamátturinn fær áorkað.

Verðlaunahafi Foreldraverðlaunanna 2025

Símarfrí, horfumst í augu og almenn störf foreldraráð Hafnarfjarðar

Foreldraráð Hafnarfjarðar fékk 3 tilnefningar.

Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur sýnt mikinn áhuga og frumkvæði í stafrænum málefnum barna og ungmenna. Síðasta ár hafa þau unnið markvisst að því að opna umræðu um skjánotkun og áhrif hennar á líðan og samskipti, meðal annars með því að stuðla að símafríi í öllum grunnskólum bæjarins. Það varð til þess að skólar fóru yfir símareglur sínar og margir tóku málið fastari tökum.

Í framhaldi af því hóf ráðið átakið „Horfumst í augu“, sem hafði sína formlegu byrjun með jákvæðu og hvetjandi myndbandi í apríl. Myndbandið minnir á mikilvægi þess að leggja frá sér símana og snúa sér að samveru og tengslamyndun – bæði innan fjölskyldna og í skólakerfinu. Þar er hvatt til að við horfumst í augu, gerum eitthvað saman og tökum ábyrgð á eigin skjánotkun.

Foreldraráðið heldur málinu reglulega á lofti og vinnur áfram að því í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ að efla samskipti, samveru og vellíðan barna og ungmenna. Verkefnið hefur þegar haft áhrif – stefna og starfshættir í grunnskólum hafa tekið breytingum og samvinna heimila og skóla styrkst.

Frábært framtak til að opna augu fólks fyrir ábyrgðri símanotkun og samveru.

Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2023

Vala Steinsdóttir

Vala Steinsdóttir, formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar var valinn Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2025, en þau verðlaun hlýtur einstaklingur sem hefur lagt sérlega mikið af mörkum í þágu nemenda og foreldra. – Ljósm.: MOTIV

Vala er formaður foreldraráðs Hafnarfjarðar. Einnig hefur hún verið formaður foreldrafélags Setbergsskóla í Hafnarfirði til fjölda ára.  Vala hefur í mörg ár unnið ötullega að góðu samstarfi milli heimila og skóla í bæjarfélaginu. Hún hefur haldið utan um óteljandi viðburði, fræðslur og fyrirlestra sem hafa það að markmiði að styðja og valdefla fjölskyldur í bænum ásamt því að ná fram góðu samstarfi milli heimila og skóla.  

Dæmi um verkefni sem Vala hefur komið að í foreldraráði er til dæmis fyrirlestraröð með fræðslu fyrir foreldra (Það þarf þorp), símafrí í grunnskólum, Hvatningaverðlaun foreldraráðs Hafnarfjarðar og margt fleira.  

Krafturinn og vinnan sem Vala setur í foreldrastarf fyrir Hafnarfjörð er nánast ólýsanlegur. Allt þetta gerir hún af hugsjón og í sjálfboðastarfi. 

Hvatningarverðlaun 2025

Tengslatorg 

Fulltrúar Hörðuvallarskóla taka við Hvatningarverðlaunum Heimilis og skóla fyrir verkefnið Tengslatorg. – Ljósm.: MOTIV

Tengslatorg er verkefni í Hörðuvallaskóla í Kópavogi sem snýst um að efla tengsl heimilis og skóla og skapa sterkari grunn að velferð, félagslegri stöðu og líðan allra nemenda. Verkefnið byggist á þremur meginþáttum: Fræðslu fyrir foreldra, þar sem skólinn býður upp á fræðandi fyrirlestra um uppeldi, mörk, ábyrgð og mikilvægi samveru og samfélagslegrar samstöðu. Líðanfundum (Tengslatorgum) þar sem forsjáraðilar í sama námshópi hittast og ræða – með samþykki barnanna – um líðan og félagslega stöðu þeirra. Fundirnir styrkja tengsl milli foreldra, skapa samstöðu og stuðningsvettvang með velferð allra barna að leiðarljósi. Farsældarsáttmála, þar sem foreldrar hittast undir stjórn bekkjarfulltrúa og sameinast um viðmið og gildi sem stuðla að betri líðan barna, t.d. varðandi svefntíma, skjátíma, samskipti og notkun samfélagsmiðla. Hvernig nýtist: Verkefnið stuðlar að heilbrigðu félagslegu og námslegu umhverfi barna með því að byggja upp traust og tengsl innan foreldrahópa og milli skóla og heimila. Með því að ræða opinskátt um líðan, koma sér saman um viðmið og vinna saman að lausnum, aukast líkur á að enginn nemandi falli milli skips og bryggju. Samstarfið skapar sameiginlegan skilning og stuðning sem styrkir sjálfsmynd barna og eykur félagsfærni þeirra. Eftirfylgni skólans við það sem kemur fram á fundum tryggir að verkefnið hafi áhrif og hjálpar foreldrum að tengjast hvort öðru og skólanum á jákvæðan hátt. Fundirnir hafa aukið samkennd meðal foreldra og ýtt undir öflugt bakland fyrir börnin. Meðvitund og ábyrgð foreldrahópsins hefur aukist og skólinn upplifir styrkt samstarf við heimilin. Þetta hefur þegar haft jákvæð sýnileg áhrif á skólabrag og bekkjaranda og hefur stuðlað að aukinni vellíðan og öryggi meðal nemenda. Einnig auðveldar Tengslatorgið foreldrum nýrra barna í skólanum við að kynnast öðrum foreldrum og mynda tengsl. 

Tilnefndir og verðlaunhafar, foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2025. – Ljósm.: MOTIV

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2