Fimmtudagur, nóvember 20, 2025
HeimFréttirDeila bæjarstjórastólnum

Deila bæjarstjórastólnum

Náðst hefur samkomulag um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Hafnarfirði. Síðustu daga hefur verið unnið að málefnasamningi flokkanna og verður hann kynntur á næstu dögum. Helstu verkefni nýs meirihluta verða að undirbúa þá miklu íbúafjölgun sem framundan er á kjörtímabilinu, stuðla áfram að kröftugri uppbyggingu fjölbreytts  íbúðarhúsnæðis, tryggja öfluga og skilvirka þjónustu, velferð fyrir alla aldurshópa og halda áfram ábyrgri fjármálastjórnun.

Flokkarnir hafa komist að þeirri niðurstöðu að Rósa Guðbjartsdóttir verði bæjarstjóri til 1. janúar 2025 og Valdimar Víðisson taki þá við starfinu. Þangað til verður hann formaður bæjarráðs. Kristinn Andersen verður forseti bæjarstjórnar út kjörtímabilið.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2