Um sjöleytið í gærkvöldi rákust tveir bíla saman á ljósastýrðum gatnamótum á mótum Hringbrautar, Strandgötu og Suðurbrautar.
Ekki er ljóst hvað olli árekstrinum en ljóst að annar hvor ók á móti rauðu ljósi.
Á síðustu 5 árum eru 8 árekstrar skráðir á sjálfum gatnamótum, þar af tveir þar sem lítils háttar meiðsl urðu á fólki. Ekki er vitað til að meiðsl hafi orðið í þessum árekstri.



