Sviss Engadin gönguskíðakeppnin var haldin 1. – 8. mars sl.
Þetta er næst stærsta gönguskíðakeppnin á eftir Vasa göngunni en 11.734 hófu keppni í bæði heilu maraþoni og hálfu maraþoni. Keppnin hefur verið haldin árlega síðan 1969.
Nítján félagar í Skíða- og skautafélagi Hafnarfjarðar kepptu í heilu maraþoni 8. mars en alls hófu 9.763 keppni en 9.717 luku keppni, þar af allir Hafnfirðingarnir.

„Það voru frábærar aðstæður á keppnisdeginum og mikil stemning í brautinni. Hafnfirðingar stóðu sig með sóma og kláruðu allir þessa 44 km langa göngu, sem var krefjandi á köflum,“ segir Sveinbjörn Sigurðsson skíðaþjálfari í samtali við Fjarðarfréttir.
Sigurður Ísólfsson kom fyrstur Íslendinganna í mark á 3,17.57 klst.
Fyrstur í mark í heila maraþoninu var Norðmaðurinn Einar Hedegart sem fór brautina á aðeins 1,30.40 klst. aðeins 0,1 sekúndu á undan næsta manni sem var heimamaður.




