fbpx
Fimmtudagur, apríl 18, 2024
HeimÁ döfinniGarðfuglahelgin 28. – 31. janúar – Þú getur tekið þátt

Garðfuglahelgin 28. – 31. janúar – Þú getur tekið þátt

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Hún verður um næstu helgi, síðustu helgina í janúar, og er almenningur hvattur til að skrá fugla í eina klukkustund.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér þá fugla sem sjást og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. Aðeins á að skrá þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla.

Hjálparblað fyrir börn sem vilja prófa að taka þátt

Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, þá hefur Fuglavernd útbúið hjálparblað með myndum em hægt er að prenta út og nota við talninguna.

Skráning niðurstaðna

Hægt er að velja þá leið sem best hentar til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Fuglavernd mælir með rafrænni skráningu, þar sem gögnin fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum. Skráningarsíðuna má nálgast hér.

Líka er hægt að prenta úr form og senda, og eru tvær útgáfur skjala í boði:

Garðfuglahelgin – eyðublað.pdf

Garðfuglahelgin – eyðublað.docx

Útfyllt eyðublöð má senda í tölvupósti á gardfugl@gmail.com eða í bréfapósti til: Fuglaverndar, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Fróðleikur um garðfugla

Auðnutittlingur – Ljósmynd: Eyþór Ingi

Lesa má um fóðrun garðfuglagarðyrkju í fuglagarðinum og garðfuglategundir. Í vefverslun Fuglaverndar fást bæði fuglafóðurfuglafóðrarar og fuglahús , bæklingurinn  Garðfuglar” og bókin „Væri ég fuglinn frjáls”,  um fyrstu skrefin í fuglaskoðun. 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2