Jólaþorpið í Hafnarfirði var opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani í dag þegar ljósin voru tendruð á Cuxhaven-jólatrénu sem stendur upp á klettinum norðan við Strandgötuna á móts við Thorsplan.

Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 38 ára.

Fjölmenni var á Thorsplani, ungir sem aldnir létu ekki kuldann á sig fá, fengu sér heitt kakó eða eitthvað gott, hlýddu á Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þresti og fylgdust með þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu. Bókaálfarnir Una og Snotra skemmtu á sviðinu og krakkar úr Listdansskóla Hafnarfjarðar.

Jólaþorpið verður opið allar helgar til jóla:
- Föstudaga frá kl. 17-20
- Laugardaga frá kl. 13-20
- Sunnudaga frá kl. 13-18




