Úthlutað var úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku en þetta er sameiginlegur sjóður ÍSÍ og UMFÍ. Badmintonfélag Hafnarfjarðar var meðal styrkþega en félagið fékk styrk fyrir verkefnið „Allir með í badminton“.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar fór af stað með nýjan æfingahóp í janúar 2025 sem ber heitið Allir með í badminton. Hópurinn er fyrir fólk á öllum aldri með þroskahömlun, hreyfihömlun eða aðrar sérþarfir og hafa áhuga á að prófa badminton.
Nítján verkefni á höfuðborgarsvæðinu fengu 8,4 milljónir úr Hvatasjóði
Nítján verkefni íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu fengu úthlutað samtals 8,4 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Hæstu styrkirnir á svæðinu voru 700 þúsund krónur og fengu þrjú verkefni þá upphæð.
Þau sem fengu 700 þúsund krónur eru Breiðablik fyrir íþróttaskóla fyrir krakka með stuðningsþarfir, Handknattleikssamband Íslands ásamt Íþróttafélaginu Öspinni fyrir verkefnið Handbolti fyrir alla og Ungmennafélagið Stjarnan í Garðabæ fyrir verkefnið Fótbolti fyrir alla.
Átta verkefni hlutu hálfa milljón króna hvert. Það eru Badmintonfélag Hafnarfjarðar fyrir verkefnið Allir með í badminton, Júdódeild ÍR fyrir Júdó í Breiðholti – frá skóla í íþróttastarf, Íþróttafélag Reykjavíkur fyrir handbolta í efra-Breiðholti og barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar ÍR fyrir verkefni sem snýr að börnum af erlendum uppruna. Knattspyrnufélagið Valur hlaut styrk fyrir þjálfun barna með sérþarfir og barna- og unglingastarf knattspyrnudeildar Vals fyrir verkefnið Fótbolti fyrir öll – opin leið inn í Val. Þá fékk Pílufélag Kópavogs styrk fyrir verkefnið Pílukast fyrir öll og listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur fyrir verkefnið Skautar fyrir alla.
Íþróttafélagið Ösp hlaut 450 þúsund krónur fyrir boccia fyrir 50 ára og eldri og Körfuknattleiksdeild Ármanns 400 þúsund krónur fyrir verkefnið Körfubolti fyrir alla í Laugardal.
Fimm verkefni hlutu 250 þúsund krónur hvert: Dansfélag Reykjavíkur fyrir Frítt í dans, Hnefaleikafélagið Haförn fyrir hnefaleika fyrir börn í frístundum, KR fyrir verkefnið KR fyrir alla, Knattspyrnufélagið Valur fyrir verkefni sem snýr að börnum af erlendum uppruna og frá tekjulægri heimilum og Íþróttafélagið
Gerpla fyrir fimleika óháð fjárhagslegum bakgrunni. Taekwondofélag Kópavogs hlaut svo 200 þúsund krónur fyrir æfingar fyrir börn með einhverfu.
57 verkefni fengu 26 milljónir
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði samtals 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Sjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Hann tók til starfa í lok árs 2024 og alla jafna hafa verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.
Meiri upplýsingar um Hvatasjóðinn má finna á vefsvæði Svæðisstöðva íþróttahéraðanna: siu.is/hvatasjodur




