Bjössi Thor heldur sína árlegu garðtónleika á Hringbraut 63 n.k laugardag, 25. júli.
„Ella Magga, konan mín sagði á einum góðviðrisdeginum fyrir 6 árum. Af hverju kallarðu ekki í vini þína og þið spilið hérna í garðinum og ég fæ mér hvítvínsglas. Ella var tekin á orðinu og hún fékk sitt hvítvínsglas,“ segir Björn Thoroddsen.
Síðan hefur mikill fjöldi tónlistarmanna komið fram á þessum tónleikum s.l. sex ár og áhuginn verið að vaxa ár frá ári.
Öllum bæjarbúum og nærsveitarfólki erboðið að kíkja í garðinn hittast, hlusta og spjalla og það kostar ekkert inn. Tónleikarnir hefjast kl 15.





