FH 1 fagnaði glæsilegum sigri í B14 flokki á Gothia Cup í dag eftir dramatískan 1-0 sigur á spænska liðinu Imperial Future í úrslitaleiknum.
Þetta markar glæsilegan endi á mótinu hjá FH-ingum sem hafa sýnt mikla seiglu alla vikuna.

Leikurinn var hnífjafn og spennandi frá upphafi til enda
Bæði lið sköpuðu sér marktækifæri en öflugur varnarleikur beggja gerði það að verkum að staðan var markalaus mestallan leikinn.
Það var ekki fyrr en á 47. mínútu, þegar einungis örfáar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, að FH-ingum tókst að brjóta ísinn. Markið reyndist það eina í leiknum og tryggði stoltum Íslendingum gullverðlaunin.
Víkingur Hrafn Þórhallsson var valinn maður leiksins að leik loknum og lýsti hann sigrinum sem draumi sem væri að rætast.
„Þetta er stórkostleg tilfinning. Mig hefur dreymt um þetta síðan ég var fimm ára gamall,“ sagði Víkingur í samtali á síðu Gothia Cup eftir sigurinn.
Hann hrósaði samherjum sínum og frammistöðu liðsins á mótinu í heild: „Þetta hefur verið frábær vika. Við erum með mjög gott lið. Þetta var góður úrslitaleikur gegn mjög sterku mótherja en við tækluðum það vel,“ sagði Víkingur enn fremur.

FH 1 lék alls 10 leiki á mótinu og skoraði 53 mörk, sem var mesti markafjöldi allra íslensku liðanna á mótinu. Er þetta jafnframt einn besti árangur íslensks félags á Gothia Cup í ár.





