Þó ekki sé neitt sem krefst þess að myndaður sé meirihluti í bæjarstjórnum, þá er það alltaf gert í Hafnarfirði, þó bæjarbúi kjósi 11 fulltrúa sína til að stjórna bænum.
Nýafstaðnar meirihlutaviðræður voru stórundarlegar og skýringar sem gefnar hafa verið eru alls ekki trúverðugar. Hið rétta á eftir að koma fram þó ljóst sé að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Allt gengur út á bitlinga, hver fær hvaða stöðu og svo það sé sagt þá snýst það einnig um laun.
Hjákátlegt var að sjá uppröðun á fundi bæjarstjórnar, þar sem meirihlutinn raðaði sér öðru megin og minni hlutinn hinum megin. Raðirnar voru mjög mislangar og þannig að síðasti fulltrúi Sjálfstæðisflokksins var kominn út að glugga í hvarfi af upptökumanni. Þarf tilbúinn ágreiningur virkilega að vera svona táknrænn?
Á það hefur verið bent að embætti forseta bæjarstjórnar sé æðsta pólitíska embætti sveitarfélagsins. Þannig var t.d. Stefán Jónsson, oddviti Sjálfstæðismanna og forstjóri Vélsmiðju Hafnarfjarðar, forseti bæjarstjórnar á sjöunda áratugnum og kom fram fyrir hönd bæjarins. Í dag er búið að gera þetta vel launaða embætti að einföldum fundarstjóra og táknrænt er að 11. bæjarfulltrúinn inn í bæjarstjórn er settur inn í það embætti.
Ráðinn er „ópólitískur“ bæjarstjóri úr Vesturbæ Reykjavíkur, sem var þó framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í 11 ár þar til núverandi formaður flokksins sagði honum upp. Ekki ætla ég núverandi bæjarstjóra, sem ég veit lítið um, annað en að reyna að sinna sínu starfi af fagmennsku og án flokkspólitískra áhrifa. Hann hefur ekki svarað almennum spurningum Fjarðarfrétta um sjálfan sig, svo kynning á honum verður að bíða betri tíma.
—
Aðalskipulag Hafnarfjarðar fyrir 2025-2040 er í umsagnarferli og hefur verið kynnt á nokkrum fundum. Þegar aðalskipulagstillagan er skoðuð kemur í ljós að stundum er verið að breyta hlutum án þess að það sé hvergi nefnt. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að allar breytingar séu kynntar sérstaklega og ekki er hægt að fela sig á bak við eitthvað form skipulagsauglýsinga.
Það vekur einnig athygli að í meirihlutasáttmála bæjarstjórnar er sagt að teknar verði upp viðræður um vaxtarmörk byggðar í Hafnarfirði en hvergi hafa komið fram tillögur um það hvar ný byggð gæti komið. Það er hins vegar búið að setja inn í aðalskipulag hvar nýr gríðarstór golfvöllur eigi að vera. Spyrja má um forgangsröðun.
Gríðarleg áhersla hefur verið lögð á stækkun atvinnusvæðis syðst í bænum og markmiðið virðist nær eingöngu að vera að fá hærri fasteignaskatta. Gluggalaus geymsluhúsin eru orðin svo mörg að hægt sé að flagga fánum, merktum „Geymslubærinn Hafnarfjörður“. Áfram á að raska ósnortnu hrauni til að fjölga atvinnulóðum án þess að nokkur stefna sé til um það hvers konar atvinnustarfsemi yfirvöld vilji sérstaklega í bæinn. Hægt og rólega er verið að ýta atvinnustarfsemi af Hraununum og það er líklegt, ásamt vaxandi atvinnustarfsemi syðst í bænum, til að auka umferð um Reykjanesbrautina.





